Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Blaðsíða 85

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Blaðsíða 85
NYJAR KVÖLDVOKUR. 19 KOSSINN. Pað var á einu þessara indælu íslensku vorkvölda. Sólin hafði nýlega svæft hinsta geislann sinn og lagt hann út af. Kyrðin og hljómleysið færðist smátt og smátt yfir láð og lög. P>essi unaðsríka, mjúka, dreym- andi kyrð, sem kemur huganum í hreifingu. Jeg var nýlega kominn inn með síðustu bækurnar mínar, sem jeg hafði verið að viðra um daginn. Jeg fór alveg ósjálfrátt að blaða í þeim. Pað var eins og jeg fyndi einhverja hneigð hjá mjer til að fara hönd- um um þær vinkonur mínar og uppeldis- systur. Mjer fanst jeg hafa nautn af því. Jeg fletti hverri bókinni eftir aðra, án þess að stöðva mig við nokkura þeirra, og hafa þær þó að sjálfsögðu ekki verið mjer jafn- kærar allar. Pað hefði mátt hugsa sjer, að jeg væri að leita að einhverju sjerstöku, og hafi það verið, þá var það alveg án vitund- ar minnar. Jeg lagði frá mjer bundnu bæk- urnar og tók til að blaða í óbundnum skræð- um og lausum blöðum, sem jeg hafði ekki hróflað við í langan tíma — og bjóst aldrei við að hafa hönd á framar. Sundurlausu blöðin höfðu Iegið neðst niður á botni í neðstu kommóðuskúffunni minni, síðan á náms og útivistarárum mínum. Núflettijeg þeim sundur brot fyrir brot og blað fyrir blað. Pað var engu líkara en eitthvert þegj- andi vald knýði mig til að bregða ljósi yfir efni þeirra, einhver hljóður máttur, sem stjórnaði fingrum mínum. Jeg var í þann veginn að leggja þau frá mjer, þegar mjer varð litið á skálinu neðst á einu horninu, og í henni voru sjö stafir, sem mynduðu til samans nafnið: Kossinn, þessa un- aðarsælu verknaðartegund, sem kemur blóð- inu á hraðari gang og og ósjálfráðum óróa í hjartað. Kossinn, kossinn endurtók hug- ur minn í einhverri leiðslu. En svo var eins og alt í einu brygði fyrir leiftri, og á svipstundu varð bjart yfir endurminningunni. Nú rann það upp fyrir mjer eins og un- aðslegur draumur, og jeg sá atburðinn eins og hann væri nýlega liðinn hjá. Kveldkyrð- in, sem þá var umhverfis mig, var svo að- dáanlega lík; og það hafa sennilega verið áhrif hennar á undirvilund mína, sem leiddu mig í þessari rannsókn minni. Jeg var kaupamaður hjá bónda nokkrum í sveit. Unga fólkið hafði riðið sjer til skemtunar og hressingar til einhvers undur- fagurs staðar, og var jeg þ á einn í tölu þess. Jeg hafði skemt mjer ánægjulega vel um daginn. Dvölin á fyrirheitna staðnum hafði orðið töluvert lengri, en gert hafði verið ráð fyrir, svo að mikið var farið að bregða birtu, þegar haldið var heimleiðis. Eins og gengur og gerist, ekki einungis á bæjum í sveit, heldur alstaðar, þar sein margt er samankomið af ungu fólki í aldurs- blóma, þá getur naumast hjá því farið, að kunningsskapur verði ekki meiri og nánari við suma en aðra. Og svo fór einnig fyrir mjer. Sá, sem jeg komst mest í kynni við var að vísu kvenmaður, einkar myndarleg og búkonulega vaxin bóndadóttir, viðfeldin og aðlaðandi. Hestarnir voru orðnir hálfslæptir eftir þetta ferðavolk, þegar heim átti að halda. Okkur kom saman um, fyrst farið væri að skyggja, að best mundi vera að ríða gæti- Iega — það munaði ekki því, úr því sem komið var, hvort við kæmum klukkutíman- um fyr eða seinna heim. Petta varð til þess, að við smádrógumst aftur úr og gleymdum alveg samferðafólkinu. Mjer leið ósköp þægilega vel, þar sem jeg reið við hlið hennarí hálfrökkrinu, og talaði við hana um ýms hugþekk efni. Hestarnir fóru líka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.