Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Blaðsíða 78

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Blaðsíða 78
72 NÝJAR KVÖLDVÓKUR. sem lífgaði og lýsti alla tilveru hans. En síðan kvöldið góða, vöruðust þau bæði að láta í ijós hugþokka þann, sem þau báru hvert til annars, eins og þau hefðu talað sig saman um það. Hugsunin um týnda bróðurinn, hafði myndað einskonar djúp á milli þeirra, sem hjelt aftur öllu því, sem þau höfðu leilað og vonað í framtíðinni. Par að auki hafði Gunnar eitt sinn kallað Önnu til sín og sagt: »Á meðan við ekki frjettum neitt nýtt af Salomon, ert þú heit- mey hans, jeg hefi heitið honum þjer og það verður að efnast. Gættu þín þvi í orði og verki, að gefa Jakob ekki neina von, hann er vinur þinn, bróðir þinn, en ekkert meira.« Anna hlýddi. Henni fanst erfiði það, er hún hafði með höndum, ekki lengur. vera þreytandi, hún hafði aldrei haft nokkurn fastan vilja sjálf, alt af hlýtt öðrum, og um síðir fanst henni þetta ekki geta verið á annan hátt, lifði þannig í sjálfii sjer eins og skelfiskuiinn í skelinni sinni. Jakob og hún höfðu fyrir löngu skilið hvort annað, án þess þó, að láta það í Ijós míð oiðum. Jakob hjelt alt af áfram að koma í hús skógarvarðarins. Á vorin plægði hann akurinn, á haustin gekk hann til veiða og skógarhöggs. Gunnar tók á móti þessum greiða sem sjálfsögðum. »Peir hafa gott af því, að vinna þessir ungu menn,«, sagði hann, »til þess að við kailarnir getum feng- ið að hvíla okkur ofurlítið. Þegar þeir voru litlir unnum við fyrir þeim.« Eitthvað ári eftir hvarf Salomons, kom umferðasali eitt sinn til skógarvarðarhúss- ins. Hann setti farangurskistil sinn niður við dyrnar og heilsaði kunnuglega. Mað- urinn var hár og grannur, með snör kæn- leg augu, koparrauður í andliti og Ijós- haerður, en skegglaus, hann var kurteis, brosandi og stimamjúkur við alla. »Gerið svo vel og fáið yður sæti, Mik- kel HalIeson,« sagði Gunnar. »Jæja, hvern- ig hefir yður gengið, síðan þjer voruð hjer síðast ?« »Jeg hefi haft það eins og hægt er að hafa það á þessum erfiðu tímum,« svaraði farandsalinn. »Já það þarf annars ekki að spyrja, hvernig þjer hafðið það lautinant, því að mjer finst þjer alt af hafa yngst í hvert skifti, sem við hittumst.« »Því í fjandanum kaliið þjer mig nú laut- inant?« spurði Gunnar með kankvísu brosi, »jeg hefi reyndar verið í hernum, en komst aldrei hærra í tigninni en að verða liðþjálfi.« »Ekki það? Jeg talaði eitt sinn við um- sjónarmanninn niður í Skulborg, þennan með skakka nefið, hann sagði að þið hefð- uð verið saman í hernum og fullyrti, að þegar lagt hefði verið til bardaga, hefði enginn í allri fylkingunni, verið jafn Iiug- aður og þjer.« »Það getur meira en verið, að umsjón- armaðurinn haíi haft rjeft fyrir sje,r« sagði Gunnar, »en setjist þjer nú niður, Mikkel Halleson og fáið yður í pípu á meðan Anna býr-til ofurlitla kvöl af púnsi handa okkur, svo skal jeg segja yður, hvernig það gekk til á stríðsárunum.« Farandsalinn settist við borðið, en það var ekki meining hans að láta Gunnar komast að, hann dróg vörukistilinn nær sjer og fór að leysa af honum böndin, síðan tók hann upp úr honum allra handana varning og fór að sýna þeim, sem viðstaddir, voru um leið og hann ljet dæluna ganga: »Já sannarlega eru þetta erfiðir tímar, en hvað skal segja? Lautinantinn sendur þó betur að vígi. en fjöldinn og það er ekki nema sjálfsagt, fyrir mann, sem hefir verið eins hugrakkur og þjer, og hætt lífi sínu og limum, að hann á elli árunum, fái að minsta kosti gott atlæti. — Þetta er reglu- lega gott tóbak, sem þjer reykið — ó, hvað lyktin er góð af því! — Hjer er poki með samskonar tóbaki í, það er ef til vill ofur- lítið betra, því að það er meiri ambra í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.