Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Síða 38

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Síða 38
32 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. öldungurinn, sem hafði margra ára reynslu fyrir sjer í að múta löggjöfum. »í herrans nafni, hvernig fóruð þjer að því?« »Jeg fór til höfuðborgarinnar, kyntist löggjöf- unum — ágætismenn alt saman — nú persónu- legir vinir mínir; sýndi þeim fram á nytsemi þessarar brautar fyrir ríkið og lögin gengu í gegn eins og ekkert.* »Jeg hefi aldrei heyrt annað eins!« hrópaði gamli, reyndi kaupandinn að sjerleyfum. »Hr. Rogers, þjer hafið vit á peningum og þekkið alla auðmenn. Jeg hefi vit á rekstri járnbrauta. Pjer leggið til fjeð og jeg byggi brautina og við erum á svipstundu búnir að fá fótfestu í New-York.« Örstutta stund hjelt Steele, að hann hefði sigrað. Eins og garnall riddaraliðshestur herðir ósjálfrátt vöðva sína við bumbusláttinn, þannig blossaði vígamóðurinn upp í augum Rogers, þegar honum duttu miljónirnar í hug. En það var aðeins andartak, brátt hallaði hann sjer aftur á b3k í stólnum og móðurinn rann af honum. »Ó, Steele,« hvíslaði hann í kvartandi róm. Jeg vildi, að jeg hefði hitt yður fyrir 30 árum, en því miður voruð þjer ófæddur þá. Slíkt sem við hefðum getað gert í fjelagi. En nú er jeg orðinn altof gamall og ráðagerð yðar getur hvort sem er ekki orðið framkvæmd. Ef til vill gæti jeg útvegað fjeð og ef til vill ekki, Menn óttast nafnið Burdock. En jafnvel þótt fjeð fengist og brautin yrði bygð, myndum vió lenda í járnbrautarstyrjöld. Rockervelt mundi lækka flutningsgjöidin og sá, sem mest fjeð hefði milli handa, myndi sigra, en það er sama sem að við yrðum sigraðir.« Steele settist með hönd undir kinn, í fyrsta skifti á æfinni hafði hann nú þrotið hug og dug. Hann langaði til að skæla, en þó jafn- framt til að bölva, en gerði hvorugt. Gamli maðurinn hjelt áfram í vinalegum róm: »Pjer eruð dugnaðarvíkingur, Steele, en veg- ur yðar til vegs og valda verður fyrir aðstoð annars fjelags, sem á einhverja framtíð. Farið að mínum ráðum og farið með leyfi yðar til gamla þjófsins, hans Rockervelt. Par hafið þjer markað.* »Hvernig get jeg gert það,« tautaði Steele mill tannanna, »þar sem jeg er í þjónustu yðar fjelags ?« »Pað er jeg líka; þess vegna ráðlegg jeg yður, sem húsbóndi yðar, að faratil Rockervelt.* »Veri þá teningnum kastað,« hrópaði Steele, og stökk á fætur eins og þessum hugsýkismín- útum hefði verið á glæ kastað. Hann kvaddi forsetann með hlýju har.dabandi og fór út úr lestrarstofunni. III. Steele varð ærið undrandi, er hann í fordyri hússins mætli Philip Manson, manni, sem mjög sjaldan heiðraði fjelagið með návist sinni. »Jeg var á leið til yðar, hr. Manson. Mig langar til að biðja yður að gera mjer greiða. Jeg ætla ti! New-York og vil því biðja yður að gefa mjer meðmæli til hr. Rockervelt.« Deildarstjórinn hleypti btúnum og varð seinn til svars. »Sannast að segja, Steele,« mælti hann að lokum, »er jeg einn af lægri embættismönnun- um, en hr. Rockervelt er mikill fyrir sjer og þekkV vald sitt. Og venjan mælir svo fyrir, að jeg gefi yður meðmæli til aðalforstjórans, sem svo aftur mælir með yður við hr. Rocker- velt. — Pjer sjáið því — « »Auðvitað,« hrópaði Steele, sem þótti leitt að hafa beiðst þessa. Synjuu þess', sem fylgdi í fótspor vonbrigðanna með Rogers, kom hon- um í ilt skap. Hann ætlaði að halda áfram, en Manson stöðvaði hann. »Kærið yður kollóttan, Steele, jeg ætla að segja yður dálítið, sem enginn annar veit um. Jeg er að hugsa um að fara frá stöðu minni.« »Hvað?« hrópaði Steele, og nú vaknaði óðar vináltan til Manson, er hann leit framan í hann og sá, að hann var ekki jafnrólegur og hægur og venjulega. Honum datt ekki annað í hug en Manson hefði í hyggju að fremja sjálfsmorð, fyrst honum dalt í hug að hvetfa frá störfum sínum við járnbrautina.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.