Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Side 60

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Side 60
54 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Manson og yður. Við tökum aðeins þá menn, sem hafa reksturinn með hönduiu, og sem við megum þakka, að alt hefir gengið vel. Um- boðsmenn okkar hafa nú komist í samband við mann, sem vill selja fyrir hálfa miljón, og jeg hefi beðið þá að selja ekki þessi hlutabrjef, fyr en jeg hefi talað við yður.* »Óbersti,« sagði Steele blóðrjóður af æsingi yfir gróðalíkum þeim, sem honum var boðið upp á, »það er framúrskarandi vinsamlegt af yður, að bjóða þetta, en fje mitt er þegar bundið með tvö—þrjú hundruð þúsundum dollara í Midland hlutabrjefum.« »Já, jeg vissi það, en umboðsmenn vorir munu sjá fyrir því öllu. Ef þjer í stað þess, að kaupa brjefin strax, — hvað urðuð þjer að gefa fyrir þau?« »Jeg fjekk þau Iítið undir 150.« »Nú, þarna getið þjer sjeð. Ef þjér í stað þess að borga hlutabrjefin út að fullu, hefðuð tekið, látum oss segja, fyrir eina miljón, mund- uð þjer nú þegar hafa grætt 100,000 dollara við hækkunina. Umboðsmenn vorir munu koma þessu í kring fyrir yður og þjer getið auðveldlega átt þau hlutabrjef, sem þjer þegar eigið og auk þess hálfu miljónina, sem jeg hefi geymt yður. Regar þjer hafið fengið arð yðar greiddan, getið þjer átt þau eða selt eftir geðþótta, og þégar hinn óumflýjanlegi afturkippur kemur, þá keypt fyrir lægra verð mikið hærri upphæð, en þjer nú eigið.« »Gott, hr. óbersti. Jeg ætla að gera það. Jeg fel yður algerlega á hendur, að semja við víxlarana.« »Jeg þakka fyrir. Jeg vil ekki leyna yður þess, að hjer er mikið í húfi og þarf víst ekki að biðja yður að þegja yfir því, sem jeg hefi sagt yður, því að okkur er Iftið um það gefið, að verðið hækki fyr en búið er að úthluta arð- inum. Og eins þarf jeg að biðja yður, sem jeg held að þjer samþykkið strax, en það er, að atkvæði þau, sem þjer eignist, notist til hagsmuna fyrir Rockervelt.* »Já, áuðvitað,* hrópaði Steele glaður. Óberstinn tók nokkur eyðublöð úr skrifborði sínu fylti þau út í snatri og rjetti Steele þau. Skrifaði hann undir, næstum athugasemdalaust, og án þess að líta á þau, en óberstinn útskýrði með mikilli lagamælgi þýðingu hvers skjals fyrir sig. »Jæja, þá er alt í lagi,« mælti óberstinn og safnaði hinum undirskrifuðu blöðum saman. »Jeg ætla strax að f nna víxlarana og koma þessu í kring.* Regar Steele kom í næsta herberg! ákvað hann, þótt vinnutími væri, að stela nokkrum mínútum af honum. Hann ætlaði að finna Sadie og spyrja hana að því, hvort hún vildi, að hann sneri sjer strax til frænda hennar með málefni, er eigi snertu kaup og sölu hlutabrjefa. Hann fann Sadie í stóru herbergi, sem var einskonar bókaherbergi. Óðar og hún sá hann mælti hún í skipandi róm, er hann eigi hafði áður heyrt: • Hvers vegna voruð þjer svona lengi inni hjá frænda?« »Af því að hann gerði boð eftir mjer.« »Hvers vegna gerði hann boð eftir yður?« »Til þess að gera ákvarðanir um framtíðina.* Hin bláu augu gneistuðu af reiði eða æsingi; Steele vissi ekki hvort heldur var. »Hvaða ákvarðanir?« spurði hún. »Pví miður get jeg eigi sagt yður það, samtal okkar var algert einkamál og frændi yðar bað mig að segja engum frá því.« Unga stúlkan næstum barði fætinum í gólfið. »Pjer vitið vel hvað jeg á við,« sagði hún. »Gerði hann boð eftir yður af þessu — af þessu í gærkveldi?« »Nei, Sadie, það var eigi minst á það. Satt að segja hjelt jeg í morgun, þegar jeg fjekk brjef hans, að hann hefði kannske grun um eitthvað og vildi spyrja mig og jeg skal játa, að mjer leið illa að verða að finna hann og tala við hann, án þess að hafa talað áður við yður. Samræða okkar snerist sem betur fór eingöngu um járnbrautarmálefni, er stóðu í sambandi við komu hr. Rockervelts í gær.« »Pjer sögðuð honum ekkert frá því, sem skeði í gærkveldi?*

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.