Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Page 71

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Page 71
NÝJAR KVÖuDVÖKUR 65 Tveir biðlar. Eftir H. Á milli Himinfjalls og Silkiborgar stendur hús, umlukið skógi og háum, stiítóttum ás- um, sem Iíkjast Svissnesku fjalllendi, þegar kvöldþokan breiðir sína mjúka blæju yfir þá. Og á daginn þegar sólin skín og loft- ið er hreint og tært, sjest óendanleg dökk- brún lyngbreiða, þar sem einirber og birki- runnar eru á víð og dreif, hörmulegar leifar þess mikla skógar, sem eitt sinn breiddi sig yfir þessar hæðir. í þessu húsi bjó skógarvörðurinn í Silki- borgarskógi. Hann var gamall, herðabreið- ur og hinn karlmannlegasti ásýndum, enda hafði hann um nokkurn tíma á sýnum yngri árum verið í herþjónustu. Til menja um það hafði hann enn stórt yfirskegg, sem með aldrinum var farið að grána, og kross úr messing, sem hann bar á brjósti sjer. Hann var ekkjumaður og átti gjafvaxta dóttur eina barna, og var hún hjá honum og hafði hússtjórnina á hendi. Þarna í einverunni hafði Anna lifað allan sinn aldur. Síðari hluta dags. að sumri til, sat Gunn- ar skógarvörður í skugga rekkjuvoðar, sem hengt hafði verið uppi úti í garðinum til að skýla fyrir hinum brennheitu geislum sólar- innar. Hafði hann fæturnar upp á föllnum bjarkarstofni og reykti pípu sína í mestu makindum. Á einum stað fjell skuggi yfir múrinn, þar |á varðhundurinn og teygði úr öllum öngum. Svölurnar kurruðu og stóreflis gæs lá og morraði hálfsofandi undir rúmfatagrind þar sem Anna hafði lagt rúmföt sín til viðr- unar. Fyrir innan hliðið lá stór og mikill viðarköstur,’ af honum lagði sterkan og hressandi ilm um alt. Uppi á honum stóð haninn og hallaði undir flatt og gólaði ámátlega. Alt í einu var þögnin rofin, við það, að kallað var hátt á Gunnar; var það ungur maður, sem stakk höfðinu út úr dyrunum og stóð svo kyr. »Mads!« hrópaði Gunnar hárri röddu. »Hjer er jeg.« »Ó, Mads minn, hlauptu nú út að hlið- inu og gáðu að, hvað það er, sem Tullifas er að urra að, það fer svo einstaklega vel um mig, að jeg nenni ómöguleg að róta mjer.« »T>að er enginn,« sagði Mads, er hann koni til baka. »Þá hlýtur Tullifas að hafa dreymt. — Heyrðu Mads, nú skal jeg segja þjer nokk- uð, þú getur farið inn og troðið tóbaki í stóru pípuna mína og beiddu Önnu um leið að færa mjer ölglas, maður verður svo ákaflega þyrstur í þessum hita. Mads fór. »En sá voða hiti í. dag,« sagði hann, þegar hann kom aftur. »Ójá, drengur minn, það er ljómandi sumar í ár.« »Ljómandi sumar?« tók Mads upp eftir honum, »það er nú helst. Kornið liggur sviðið á ökrunum, fjeð drepst hrönnum saman og bóghveitið visnar, áður en það nær að blómgvast.« »Hvern fjandan kemur fjenaðurinn, korn- ið og bághveitið mjer við?« hreytti Gunnar út úr sjer, »hvað þarf jegað sjá um af því? Sumarið er ágætt. í þessum og þvílíkum hitum er nóg af refum. Við fáum góðan feng, þegar veiðarnar byrja. í fyrra haust., þegar jeg stýrði veiðunum, meðan þeir háu herrar dvöldu hjer, sló konungurinn eitt sinn á öxlina á mjer og sagði: »Jeg veit ekki hver skollinn segir fyrir 9

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.