Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Page 77

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Page 77
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 11 af, jeg gat sjeð það á honum. Æ! náðu nú þarna í eldspýtur fyrir mig; þarna á veggnum.« Jakob gerði það, síðan settist hann á bekk út í horni og sama óskemtilega þögn- in hófst aftur á ný. Anna sat fyrir borðend- anum: stóru dökku augun hennar lýstu svo mikilli angurværð og blíðu í hvert skifti, sem hún beindi þeim til Jakobs. Alt í einu kom Mads hlaupandi inn í garðinn. Flýtirinn, sem á honum var, hlaut að boða einhver stórtíðindi. Gunnar stóð á fætur og beið hans út við gluggann. »Húsbóndi minn!« hrópaði hann, »hús- bóndi minn, hafið þjer heyrt það?« »Nú hvað gengur á?« »Annar tvíburanna hefir skotið stórt dýr.« »Já jeg veit það heimskinginn þinn, er ekki af öðru, sem þú ert að að gera þenn- an háfaða?« »Jú það er eitt enn, dýrið liggur hérna út á veginum, fyrir framan gamla eplatrjeð, hjá húsinu hans Jensens og byssan og púðurhornið liggur ofan á því.« »Hvað segir þú! — farðu undir eins og sæktu það, bíddu annars ofurlítið, jeg verð Iíklega að hjálpa þjer. Jeg vissi ofur vel að fógetinn fengi dýrið í kvöld, jeg er ekki vanur að lofa því, sem jeg ekki get ent.« Hann fór. Jakob sat á sínum stað út í horni, þögull og hreyfingarlaus, eins og þetta kæmi honum ekkert við. Anna horfði viðstöðulaust á hann, en hann virtist ekki gefa því gaum. »Nú skil jeg fyrst, hvað Salomon átti við, þegar við skildum,« hvíslaði hann með hásri skjálfandi rödd: »Á meðan annar hlær mun hinn gráta.« Anna gekk til hans, vafði báðum hand- leggjunum um hálsinn á honum og hvíslaði: »Guð faðir á himnum haldi sinni vernd- arhendi yfir okkur báðum.« Að því mæltu gekk hún út í eldhús, til að búa til kvöldverð handa Gunnari. »Og þú hefir ekkert sjeð til Salomons ?« spurði Gunnar, þegar hann og Mads komu aftur inn í stofuna. »Jeg held að hann hljóti að hafa verið orðinn þreyttur og hafi látið annan bera dýrið hingað upp eflir, á með- an hann hefir farið heim og fengið sjer matarbita og hvílt sig ofurlítið eftir veiðarn- ar. — Já nú getur þú farið þegar að þú vilt, Jakob litli, heilsaðu Salomon frá mjer og segðu honum að jeg standi við það, sem jeg hafi sagt, hann má koma þegar að honum sýnist.« Jakob stóð á fætur, hann leit til Önnu um Ieið og hann rjetti Gunnari hendina. »Góða nótt skógarvörður! sagði hann. »Góða nótt Anna litla og sofðu rótt!« Að svo mæltu fór hann út. Sá, sem kom til skógarvarðarhússins morguninn eftir, var Jakob. »Jeg er hræddur um að eitthvað hafi hlotið að koma fyrir Saiomon,« sagði hann, »hann hefir ekki komið heim síðan í gær- morgun og enginn, veit hvað af honum er orðið. Við hjeldum að hann hefði farið til móðursystur okkar í Ry, og sendum boð þangað í gærkvöld, en hann var ekki þar. »Og ekki annað,« svaraði Gunnar hlægj- andi, »hann kemur víst áreiðanlega, þegar hann orðinn svangur.* En Gunnari skjöplaðist, Salomon kom ekki. Fað var alstaðar leitað að honum, í skóginum, niður við vatnið og hjá öllum kunningjum hans. Nafn hans var lesið upp á safnaðarfundi, en ekkert dugði, Sal- omon kom ekki aftur, hann var með öllu horfinn. Pannig Ieið langur tínri. Framkoma Jak- obs og Önnu hvert við annað, var alveg óbreytt, hann kom heim til hennar á hverj- um degi, rödd hennar var sem söngur í eyrum hans og augnaráð hennar sólargeisli,

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.