Tíbrá - 01.01.1892, Síða 10

Tíbrá - 01.01.1892, Síða 10
t) lireina, því að vjer höldum áfram að lifa og vinna, þótt vjer förum hjeðan. Fuglamálið. (Þýtt). Páll og Dagbjört lifðu í litlum kotbæ nálægt skógi. Faðir þeirra var erfiðismaður og vann baki brotnu, til þess að geta staðið straum af þeim. Bæði sumar og vetur fór hann fyrst á fætur á morgnana, til að fella trje í skóginum. Nú liðu tímar fram að jólakvöldinu. Þau Páll ogDagbjört sátu við eldinn, ogvoru óánægð yfir því, að fá engar fallegar gjafir eða barnagull í jólagjöf, og ekki svo mikið sem neitt gott að borða, eins og sum börnin í kring um þau. »Elsku mamma mín!« sögðu þau um morg- uninn, áður en þau lásu bænir sínar. »Held- urðu ekki, að guð sje buinn að gleyma okkur?« »Það er ljótt að hugsa og tala til svona,« sagði hún. »Hlaupið út og tínið fyrir mig nokkrar spýtur, svo að jeg geti hitað tevatnið handa honum pabba ykkar.« Iíún reyndi með þessu að fá þau til að gleyma sorgarefninu, og það lá líka illa á henni sjálfri, af því að hún gat ekki gefið þeim neitt fallegt. Þau hlupu nú i burtu, til þess að tína spýt-

x

Tíbrá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíbrá
https://timarit.is/publication/515

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.