Tíbrá - 01.01.1892, Page 17

Tíbrá - 01.01.1892, Page 17
13 ofboðhægt upp i hann beislið, og sagði við slæma drenginn: »Viltu, þegar þér er illt i munninum, að snæri sé bundið ofan í sárið? Þú átt aldrei að gera öðrum það, sem þú vilt ekki láta gera þér!« Slæmi drengurinn sagði: »Þetta er hestur, sem þig varðar ekkert um.« »Jú! Mig varðar um allt, og eg á að laga allt, sem hægt er að laga. Veröldin er eins sköpuð fyrir mig eins og fyrir þig, og guð hefir skapað slcepnuna eins og þig og mig, og vill, að henni líði vel.« »En hesturinn getur ekki kært mig eins og þú,« sagði slæmi drengurinn. »J ú! Hann getur kært þig fyrir guði, og all- ar skepnur, sem þú ferð illa með, geta það,« sagði góði drengurinn, »því að hestarnir hneggja og skilja hverjir aðra, og hver skepna hefir sitt mál; og heldurðu ekki, að guð, sem gaf þeim þetta mál, skilji það? lieldurðu, að hann skapi nokkuð, sem hann skilur ekki og þekkir ekki? Þetta líf líður skjótt bæði fyrir mönnum og skepnum, og þú veizt þá ekki, hvað tekur við, og hversu þú verður dæmdur fyrir að farailla með skepnurnar.« Slæmi drengurinn fór nú af stað og teymdi hestinn, sem nú var orðinn góður í taumi, og hann skammaðist sín fyrir, hvað slæmur hann var.

x

Tíbrá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíbrá
https://timarit.is/publication/515

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.