Tíbrá - 01.01.1892, Qupperneq 28
24
Litla kisa óánægð.
»Því ertu að klippa af mér kampana?« sagði
kisa stygglynd við Ástríði litlu, sem sat með
hana í hnjánum og ætlaði að stýfa kampa henn-
ar.
»Eg ætla að gjöra þig fallega, eins og hann
pabba minn,« sagði Ástríður litla. Hann rak-
aði kampana sína í gær, og mamma sagði, að
hann væri miklu fallegri.«—»En það, sem er
gott fyrir hann pabba þinn, er ekki gott fyrir
mig,« sagði litla kisa.
»Eg er lika búin að stýfa af mér hárið«,sagði
Ástríður litla, og greip upp í spéskorna hárið
sitt, og eg hélt, að þér þætti líka gaman að
verða klippt.«—»Nei! Mér þykir það ekki gam-
an,« sagði kisa, og brauzt svo fast um, að hún
klóraði Ástríði litlu á handarbakið.
»Því reifstu migtilsvona, ótætið þitt?« sagði
hún hálfskælandi.
»Af því að þú ert að gera mér illt,« sagði
kisa.
»Er þá illtað vera fallegur?« sagði Ástríður.
»Eg verð ekkert fallegri fyrir það, því að
kamparnir mínir eru svona gjörðir. Þeir vaxa
ekki, eptir að eg er orðin stór, eins og hárið
á þér og skeggið á honum pabba þínum.«
»Iívers vegna vaxa þeir þá ekki?« spurði
Ástríður.
»Af því að þeir eru mátulega langir eins og