Tíbrá - 01.01.1892, Page 38

Tíbrá - 01.01.1892, Page 38
34 tóni. Nú þegar Hinrik sá ekki þann, sem tal- áði í skóginum, hljóp liann lieim til pabba síns, og sagði honum um slæma drenginn, sem hefði falið sig inni í skóginum og nefndi sig öllum illum nöfnum. »Hinrik minn!« sagði faðir lians, »þú hefir einungis heyrt bergmál þinna eigin orða. Þú hefir fyrst talað ljótu orðin. Ef þú hefðir mælt vel og kurteisislega, þá mundir þú liafa feng- ið góð og kurteis orð aptur. Góð orð færa gott bergmál«. Ráövandi drengurinn. (Þýtt). Einu sinni fór maður nokkur með fulla körfu af eplum til að selja, og bar hana á höfðinu, svo sem margir gjöra í öðrum löndum. Iiann tók eptir því, að nokkur epli duttu niður á götuna, en drengur, sem fór sama veg- inn, tók þau upp og kallaði: »Hérna hefirðu týnt nokkrum eplum«. Maðurinn stóð við og drengurinn fékk honum eplin. Maðurinn þakkaði honum fyrir og tók við eplunum. »Og nú máttu«, sagði hann, »velja þér bezta eplið úr körfunni minni«, og setti hana niður. »Veldu þér gott epli, því að þú ert ráðvandur drengur«. Drengurinn valdi sér eplið, þakkaði fyrir það og maðurinn fór sína leið. J

x

Tíbrá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíbrá
https://timarit.is/publication/515

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.