Tíbrá - 01.01.1892, Blaðsíða 44
40
ur missa þetta tré, en að eiga son, sem er
lygari*.
Þessi drengur var Georg Washington, forseti
Bandaríkjanna í Ameríku, og einn af merk-
ustu mönnum heimsins.
Sá getur aldrei orðið mikill maður, sem er
ósannsögull og huglaus.
Ærin og' lambið.
(Þýttj.
Einu sinni var drengur að ganga úti, og sá,
að kind gekk til sín, fór þá aptur fáein fet,
snöri sér þá við, horfði framan í hann og jarm-
aði hátt.
Drengurinn hafði aldrei séð kind haga sér
þannig, og af því að hann vildi komast eptir,
hvað hún vildi, elti hann hana. Þau héldu
á fram, en við og við snöri kindin sér við til
að sjá, hvort drengurinn kæmi með sér.
Loksins komu þau að á, og drengurinn sá,
að ofboðlítið lamb var niðri í ánni við bakk-
ann og gat ekki komizt upp úr henni
Drengurinn lagðist niður á bakkann og dró
lambið upp úr, og ærin gladdist mikið yfir að
fá lambið sitt aptur.