Tíbrá - 01.01.1892, Síða 60

Tíbrá - 01.01.1892, Síða 60
56 svo sem foreldrar gera börn sín misjafnlega úr garði. En nú ætlaði hann að verða mælsku- maður, og sá, sem ætlar sér að halda opinber- ar, áhrifamiklar ræður, verður að koma vel fram. Augun verða jafnan að hafa nokkuð. Hvað haldið þið, að hann hafi tekið til bragðs til þess að laga þessa vöntun? Hann gekk opt og mörgum sinnum inn í her- bergið sitt. Þar stóð ofurstór spegill, og hann lagaði limaburð og látbragð sitt frammi fyrir honum, þar til er hræringarnar urðu liðugar og geðslegar. »Hvað fékk hann svo að launum?« munuð þið spyrja. Það, að hann hefir áunnið sér ódauðlegt nafn fyrir orðsnilld og mælsku gegn um allar aldir, og er þar að auki talinn einn með hinum beztu og drenglundustu mönnum, sem lifað hafa, og það er enn meiri heiður. Enginn getur kallazt mikill maður, sem ekki er jafnframt góður maður. Gott sjálfstraust. Eg mætti litlum dreng, sem bar svo þungan poka á bakinu, að eg hélt, að litla veika bakið mundi láta undan, og sagði því viðhann: »Þetta er ofþungur poki fyrir þig að bera, barnið mitt!« Hann setti pokann á stein, lypti honum hærra

x

Tíbrá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíbrá
https://timarit.is/publication/515

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.