Gripla - 01.01.1984, Blaðsíða 273
KONUNGSBÓK EDDUKVÆÐA 269
runninn frá 1824, enda alveg augljóst, að kaflinn úr Brynhildarljóðum
er langtum skyldari Völsunga sögu en Eddu.14
Eins og kunnugt er, var samband milli þeirra Arngríms lærða og
Magnúsar og það var að frumkvæði Arngríms, að Magnús setti saman
Laufás-Eddu.15 Virðist mér næstum víst, þótt ekki verði hér reynt að
fullsanna, að Arngrímur lærði og Magnús í Laufási hafi báðir notað
sama skinnhandrit Völsunga sögu, Nks. 1824 b, 4to, sem enn er varð-
veitt.
Þegar eftir að Worm hafði fengið aðra útgáfu af Danica literatura
prentaða, þá sendi hann Brynjólfi Sveinssyni biskupi eintak með bréfi
8. maí 1651, en Brynjólfur gerði ýmsar athugasemdir og nefnir m. a.
fyrrnefnda vísu: ‘Sigrúnar skaltu kunna’, sem hann segir, að beri að
leiðrétta eftir Sæmundar-Eddu.16 Annars notaði Worm Eddukvæði í
seinni útgáfu sinni af þessu riti, en handrit af þeim hafði vinur hans
Stephanius fengið haustið 164517 og úr því handriti hafði Worm tilvís-
anir til Eddu í seinni útgáfu á riti sínu Danica literatura.18 Þetta sýnir,
að Brynjólfur hefur talið textann af Sigurdrífumálum í Eddu betri en í
Völsunga sögu. Nú er vitað, að Brynjólfur bar gott skyn á gildi fornra
handrita, t. d. skrifaði hann Þormóði Torfasyni um, hve eftirrit gætu
verið röng, og fögur og ásjáleg pappírshandrit Eddu séu ‘reyngre og
orettare enn þad gamla’.19 Af þessu er ljóst, að Brynjólfur hefur metið
betur gildi fornra handrita, þ. e. verið meiri fílólóg en Worm sem hafði,
eins og áður kom fram, aðgang að handriti Eddukvæða, en notaði það
aðeins stundum.
III
Fram að þessu hefur verið rætt um óvissan feril 1824, en nú verður
reynt að segja nokkuð frá kunnum ferli þessa handrits og áhrifum þess.
14 Anthony Faulkes. The sources of Specimen Lexici Runici. 95-96, 138. (ís-
lenzk tunga. 5. Rv. 1964. 30-138.)
15 Edda Magnúsar Ólafssonar (Laufás Edda). Edited by Anthony Faulkes. Rv.
1979. 15-17. (Two versions of Snorra Edda from the 17th century. Vol. I.)
16 Bibl. Arn. VII. 122-123, 129-130, 416-417, 420.
17 Sama rit. 363, 522.
18 Sama rit. xxiv.
19 Ur bréfabókum Brynjólfs biskups Sveinssonar. Jón Helgason bjó til prent-
unar. Kbh. 1942. 161. (Safn Fræðafélagsins. XII.)