Eimreiðin - 01.06.1922, Page 8
136 VFIR VATNAHJALLA OG SPRENGISAND eimreiðin
svo nefnd Þjórsárdrög, með smáum uppsprettukvíslum, sem
renna til SV. Fórum við yfir þá stærstu er kemur lengst að
norðaustan.
Þokan og úrkoman hélst, og er við höfðum verið á ferð í
rúmar 3 klst. yfir slétta, misjafnlega greiðfæra mela, komum
við alt í einu að tjörnum með sandbleytu í kring. Sýndust
þær sem stór vötn í þokunni, sem altaf var hin þéttasta. Eftir
talsverðar krókaleiðir komumst við á milli þeirra, en brátt skeði
mjög merkilegt. — Við komum alt í einu út úr þokunni eins
og út um dyr á húsi. Þokan stóð sem þéttur — beinn —
veggur á báðar hliðar, svo langt sem sá. En fram undan fót-
um hestanna var lítið gil, en á barmi þess hinu megin voru
Sprengisandsvörðurnar í beinni röð til beggja handa svo langt,
sem augað eygði. — Við fórum yfir gilið og hvíldum hjá
einni þeirra og tókum okkur bita. Urkoma var þar ekki telj-
andi, en veggurinn hélst hinumegin við gilið.
Yfirlit. Á ókunnri leið er ferðamaðurinn feginn að hafa ljósa
leiðarsteina. Það fer svo margt framhjá af fegurð náttúrunnar,
ef hann þarf alt af að vera að stritast við að halda stefnunni.
Ferðalagið verður ófrjálst. — I ísl. óbygðum gleðja vörðurnar
augað. Þær eru svo samgrónar náttúrunni, enda oftast úr því
efni, sem fyrir hendi er á þeim stað. Séu þær vel gerðar nýt-
ur ferðamaðurinn þess, og séu þær illa gerðar eða hálfhrundar,
stuðlar það að því að setja sinn þunglyndislega geðblæ á veg-
farandann. — Man eg fald minn fegri o. s. frv.
En eitt er víst: Þær eru enn þá alt of óvíða og ófull-
nægjandi.
Það á að varða veg eins og þenna. Hann er greiðfær,
stuttur og góður yfirferðar — að vísu er hann ekki vandrat-
aður suður í björtu, en erfiðari norðureftir. Er víðast ilt að
komast ofan í botninn á Eyjafirði, annarstaðar en frá Sánkti
Pétri. Okunnugir myndu trauðla rata frá Geldingsá norður
yfir Vatnahjalla og hitta á Sánkti Pétur, ef nokkuð væri að
skygni. En þar eð þessi vegur er stuttur, og liggur svo beint
við úr Eyjafirði og í Eyjafjörð til suður- og norðurferða, þá
er þeim mun sjálfsagðara að gera hann svo úr garði, að
ferðamenn áræði að leggja á hann fylgdarlaust.