Eimreiðin - 01.06.1922, Blaðsíða 13
Eimreiðin YFIR VATNAHJALLA OG SPRENGISAND
141
en skáldum er ekki leyfilegt að reyna að lýsa þeim. — Þarna
íór eg í því yndislegasta veðri allan daginn, og útsýnin var
íöfrandi. Vegurinn greiður og glöggur, því að auk varðnanna
Yoru götuslóðar víðast hvar. Og þó þótti mér hann langur.
Eftir kortinu að dæma voru ca. 50 km. frá Bólstað til bæja, en
s>ðar komst eg að því, að kofinn liggur 90 km. uppi í óbygðum.
Hjálparfoss.
Er neðar kom var gil að Þjórsá, þröngur dalur og gljúfur
ánni. Það hefst með stórum fossi. Liggur þá leiðin upp á
^alsbrúnina og frá ánni um stund, en nálgast hana aftur þar
5em Tungnaá fellur í hana. Aftur liggur leiðin frá ánni yfir
^áan ás. Á vesturbrún hans er gullfallegt. * Sér þaðan hvernig
^jórsá á síðasta angnabliki, áður en hún fellur norðan Búr-
fells, snarbeygir suður og fellur suður austan Búrfells og fer
Sl>ður fyrir það, en yfir beygjunni — um skarðið norðan Búr-
fells og Skeljafells, — sést skína í hana aftur niður í Þjórsárdal.
^sður skilur ekki þennan krók, sem hún gerir, því að leikur
e>nn virðist fyrir hana að brjótast beint niður í Þjórsárdal