Eimreiðin - 01.06.1922, Síða 47
EIMREIÐIN
LJÓSMVNDIR
175
tilbúningur þeirra þarfnast hinnar mestu nákvæmni og vandvirkni. Mesti,
Ijósstyrkleiki sem nokkur þörf er á að hafa við þær myndir, sem venju-
lega eru teknar af áhugamönnum er f4,5, og þarf þó sjaldan á því að halda.
Samkepni.
Eimreiðin býður öllum áhugamönnum til fyrstu ljósmynda samkepni
smnar, og velur fyrst verkefnið:
Valnsmyndir.
Undir þessa kepni heyra allar þær myndir, þar sem segja má að vatn
se aðalefnið eða verkanir vatns. Má nefna til dæmis sjávarmyndir, brim,
speglanir við bryggjur eða á stöðupollum, fossa, ár og læki o. fl. Hver
e]nasti maður á kost á að taka fallegar vatnsmyndir, og fjölbreytnin er
°endanleg. En því er sérstakt efni valið, að auðveldara er að dæma
ntilli myndanna.
Reglur.
1- Allir, sem ekki eru Ijósmyndarar að atvinnu, mega keppa.
2. Myndirnar ættu helst ekki að vera mjög smáar né mjög stórar. Þær
e'9a helst að vera límdar upp á spjald. Skrifa aftan á þær: Nafn höf-
undar, og heimili, nafn myndarinnar og helst með hvaða vél og linsu,.
hvaða Ijósstyrkleika, hve lengi lýst, hvaða framkallari, hvaða plata eða
filma, hvaða pappír o. fl. upplýsingar.
3. Myndir skulu sendar ritsljóra Eimreiðarinnar fyrir 1. okt. í haust.
Verður reynt að birta árangur kepninnar í síðasta hefti þessa árgangs.
Þrenn verðlaun verða veitt, en meira til heiðurs en til fjár, 1. verðl.
kr- 25, 2. verðl. kr. 15 og 3. verðl. kr. 10. Auk þess verður talað um
hverjir eigi fleiri lof skilið.
5. Dæmt verður af hæfum mönnum og tekið tillit til hvorstveggja,
*rágangs og listasmekks, myndirnar dæmdar bæði sem Ijósmyndir og listaverk.