Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1924, Page 37

Eimreiðin - 01.10.1924, Page 37
eimreidin FERÐ YFIR ATLANTSHAFIÐ 349 athuga fólkið, einkum þó farþega 1. farrýmis. Þar mátti sjá margar sællegar og snotrar stúlkur, klæddar dýrindis líni, gulli °9 gersemum, og feitlagna veraldarsælkera og auðkýfinga, en suma hrukkótta, magra og þunglyndislega, þrátt fyrir auð og allsnægtir. Þar voru gamlar miljóna-kerlingar, vindþurkaðar hrokkin- skinnur, og mér sýndist presturinn einkanlega hrífa hug þeirra, tegar hann í ræðu sinni bað guð að forða okkur frá öllum sjávarháska á leiðinni. — Þær kviðu auðsjáanlega kaldri dýfu úti á rúmsjó. En allir munu hafa hugsað, hver upp á sína v>su, til »Titanic«-slyssins. Sjálfum mér fanst, satt að segja, slíkur lífsendir, ef koma ætti, engu fyrirkvíðanlegri en sóttar- sæng á þurru landi, og hugsaði eg mér, að láta guð alveg fáða. Það væri ekki um annað að gera en að synda eins lengi og hægt væri, og mér finst ósennilegt, að sú barátta v>ð dauðann sé harðvítugri að þola en margar sjúkdómskvalir, t>ó að morfín sé máske á boðstólum. I sérstakri bæn bað presiurinn að endingu guð að varð- veita tvo mikla þjóðhöfðingja, konung Breta og forseta Banda- r>hjanna. Þessi bæn stóð framan til í sálmabókinni, og sá eg her, að Bandaríkjaforsetinn var hafður á milli sviga. Auðsjá- anlega var gert ráð fyrir, að fyrirbænir fyrir honum ættu ekki v>ð öll tækifæri og mætti stundum alveg sleppa honum. 10. Það var þoka, þegar við nálguðumst New-York. Eg hafði hlakkað til að sjá líkneski frelsisgyðjunnar sem fyrsta fyrir- ðoða þess, að maður væri að nálgast bæinn. Allir þekkja af mYndum þessa fögru frelsisgyðju, sem Frakkar gáfu Banda- r>kjamönnum forðum, og stendur hnarreist við hafnarmynni New-Vork-borgar, með geislakrónu um höfuðið, og bregður a loft skæru blysi með annari hendinni. — Eg hafði sem drengur lesið um þessa risavöxnu mynd, og fylgdi sögunni, að ^ menn gætu gengið upp að blysinu innan í handleggnum. En nú faldi þokan gyðjuna, eða réttara sagt — gyðjan faldi Sl9 í þokunni, og mér fanst hún gera það viljandi. Sennilega dlygðaðist hún sín fyrir það ófrelsi, sem eg og aðrir farþegar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.