Eimreiðin - 01.07.1927, Qupperneq 31
eimreiðin TRÚIN Á JESÚM KRIST, GUÐSSON 223
ingum, með þeirra ströngu eingyðistrú, að hann hneykslaði
þá og meiddi trúartilfinning þeirra. En Grikkir litu alt öðrum
augum á þetta. Þeir hugsuðu sér stórmennin til orðin með
þeim hætti, og töldu þá stundum í bókstaflegum skilningi syni
einhvers guðanna. Frægðarljóminn varð meiri af hetjum þeirra
og afreksmönnum, ef þeir voru taldir vera guðs-synir.
Eg held ég segi ekki of mikið, þótt ég fullyrði, að það er
þessi skilningurinn á guðs-sonarheitinu, kenningin um yfir-
náttúrlegan getnað, sem ýmsir menn eiga nú erfiðast með að
tileinka sér og samþýða trúarhúgmyndum sínum. Svo óskiljan-
legur finst þeim hann vera og fjarlægur hugsunarhætti vorra
h'ma, að trúarlærdómar á honum reistir hljóti að fæla ýmsa
frá kirkjunni. Aftur á móti eru aðrir, sem finst alt standa á
því, að haldið sé dauðahaldi í þennan skilning, því að sé ekki
trúarlærdómnum um það, að Jesús sé getinn af heilögum
anda, haldið fast fram, þá sé öll trú á guðdóm Hrists fyrir
borð borin eða gersamlega glötuð.
Þetta mál er mörgum viðkvæmt, og fyrir því er hin mesta
nauðsyn á að ræða það með stilling og gætni. Vér ættum
hér, eins og oftar, að gera oss far um að skilja báða máls-
aðilja. Og þá leyfi ég mér að benda hinum íhaldsömu á, að
það er ekki tregðan til að trúa þessu, sem stöðuglega vekur
þessa spurning af nýju, heldur frásögur N. tm. sjálfar.
Ef þær eru rannsakaðar til botns og rit N. tm. borin vand-
lega saman, kemur það í ljós, að sögurnar um fæðing Jesú
og bernsku eru ekki ritaðar jafnsnemma og meginkjarni guð-
spjallanna. Frumguðspjallið, sem bæði Matteus og Lúkas
styðjast við, skýrir oss alls ekki frá neinu um fæðing Jesú;
því síður talar það nokkurt orð um yfirnáttúrlegan getnað;.
og þó er þetta guðspjall — Markúsarguðspjall — frá upp-
hafi til enda til þess ritað, að fá lesendurna til þess að trúa
bví, að Jesús hafi verið guðs-sonur, — en það auðvitað skilið'
í andlegri merkingu. Já, það sem undarlegra er. í forsöguna
sem svo hefur verið nefnd — hjá þeim báðum Matteusi
°S Lúkasi — eru teknar upp ættartölur, sem báðar eiga að
sýna, að Jesús sé kominn í beinan karllegg frá Davíð kon-
ungi, auðsæilega í þeim tilgangi að gera mönnum hægara
fyrir að trúa því, að hann hafi verið hinn fyrirheitni Messías,.