Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1927, Side 37

Eimreiðin - 01.07.1927, Side 37
EIMREIÐIN TRUIN Á ]ESÚM KRIST, GUÐSSON 229 komið, þá hefði aldrei nein kenning um meyjarfæðing eða getnað af heilögum anda orðið til. Þótt þau tvö guðspjöll hefðu jafnvel glatast, en öll hin rit N. tm. varðveizt, hefði kristindómurinn þá glatast eða trúnni á guðdóm Krists ekki verið haldið fram í N. tm.? Að halda slíku fram væri fjar- stæða. Það er sama sem að segja, að hvorki Páll né Jóhann- es^ hafi trúað á guðdóm Krists. Að ætla sér að einskorða trúna á guðdóm Krists við trú á yfirnáttúrlegan getnað er gagnstætt Nýja testamentinu. I trúfræði sinni (bls. 395) tekur Peder Madsen þetta fram: Ef vér höldum fast við guódómseðli og fortilveru Krists, þá nægir það oss, án þess að vér þurfum að gera oss jafn- ákveðnar hugmyndir um, með hverjum hætti umskiftin urðu, er hann gerðist maður. Hins yfirnáttúrlega getnaðar hefur á öllum öldum gætt lítils í kristindómsboðuninni. — Sá mikils- virti og gætni kennari minn lagði aðaláherzluna á fortilveruna og upprisuna og taldi alt jarðlíf Krists fá ljós sitt frá þeim (sjá trúfræði hans bls. 383). Sama finst mér höfundur Hebrea- bréfsins hafa gert. Hjá þeim höfundi hef ég fundið þau orðin, sem lengi hafa staðið fyrir mér sem fegursta og sannasta lýsingin á eðli Krists: Ijómi Guðs dýrðar og ímynd hans veru. Matteus skýrir oss svo frá, að Jesús hafi eitt sinn spurt lærisveinana um, hvern þeir ætluðu sig vera. Pétur svaraði fyrir þeirra hönd: »Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs«. Það er enn játning allra þeirra, sem trúa því, að hann hafi verið Messías, að hann hafi verið af Guði sendur mannkyn- inu til hjálpar og frelsunar. Þetta var meginatriði hinnar kristilegu játningar á dögum postulanna, og það er það enn. Vér ættum að hætta að deila um auka-atriði og láta af þeim ljóta sið að vera með stöðuga tortrygni við aðra^út af skoðanamun, sem alls eigi snertir kjarna trúar vorrar. í stað bess ættum vér að sýna öllum þeim einlægt bróðurþel, sem vilja vera lærisveinar hins upprisna drottins vors og meistara. Leggjum allir kapp á að tileinka oss boðskap hans og að láta nann hafa áhrif á vort eigið líf og mannlífið kringum oss. Hann er enn sá konungur, sem öll kristnin vill lúta, hversu frábrugðnar sem skoðanirnar kunna að vera í einstökum atr- ^oum. Og ég er þess fullvís, að vér munum engrar vegsemd- aj óska oss fremur en þeirrar að mega kallast og vera hans Þlónar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.