Eimreiðin - 01.07.1927, Qupperneq 60
252
BARÁTTAN UM OLÍUNA
EIMREIÐIN
grænum blæ. Á síðari árum eru menn farnir að nota óhreins-
aða olíu, en mestur hluti heimsframleiðslunnar er þó hreins-
aður með eimsuðu (destillation). Allri olíu má skifta í tvo
flokka, eflir því hvort dreggjarnar, sem eftir verða við eim-
suðu, eru asfalt eða ljósleitt parafín. Við eimsuðuna er olían
greind sundur í ólíkar tegundir, eftir því hve lágt hitastig hún
þarf til að gufa upp, bensín gufar fyrst upp, þá venjuleg
steinolía (lampaolía), þá dieselmótorolía, þá olía, sem notuð
er til brenslu undir eimkötlum, smurningsolía o. s. frv. Enn
fremur eru unnin úr olíunni ýms aukaefni, svo sem fenól
og tjara.
Mikill munur er á steinolíu- og bensín-innihaldi olíunnar,
eftir því hvaðan hún er. (Jr olíu frá Pennsylvaníu fást t. d.
10—20°/o bensín, 55—75 °/o steinolía og 10—20 °/o aðrar
olíur og efni, sem hafa hærra suðumark en 300 stig. En í
olíu frá Baku er aðeins 5 °/o bensín, 25—30 °/o steinolía, en
önnur efni 60—65 °/o. Með sérstökum úlbúnaði má þó ná
meiri steinolíu úr afganginum, en það þykir ekki borga sig
síðan farið var að nota olíusora til kyndunar undir eim-
kötlum. —
Á sama hátt og menn hafa gert áætlanir um kolaforða
heimsins, hefur einnig verið reynt að reikna út olíuforðann í
iðrum jarðarinnar. Er olíuáætlunin talin áreiðanlegri en kol-
anna; kol leynast betur í jörðinni, og menn hafa leitað miklu
betur að olíu en kolum, því þar var eftir meiru að slægjast.
Olíulind er meiri auðsuppspretta en kolanáma. Samkvæmt
áætluninni eru ekki nema 7,700 miljónir smálesta eða um
60,000 miljónir tunnur í olíulindum þeim, sem menn þekkja
nú. Síðan 1913 hefur framleiðslan aukist að meðaltali um 10°/o
á ári og er nú yfir 1000 miljónir tunnur árlega. Með sama
áframhaldi verða olíubirgðir þær, sem menn vita um nú, jetn-
ar upp á aðeins 20 árum! En væru skorður reistar við þvk
að árseyðslan færi fram úr þúsund miljónum tunnum, mundu
birgðirnar endast í 60 ár.
Sérstaklega eru horfurnar eftirtektarverðar í Bandaríkjunum-
í lindum þar telja menn að til séu tæpar 10,000 miljónir
tunnur, en ársfamleiðslan er yfir 700 miljónir tunnur. Þo
Ameríkumenn auki ekki framleiðsluna frá því sem nú er, geta