Eimreiðin - 01.01.1930, Qupperneq 54
34 KRISHNAMURTl í OJAI-DALNUM 1929 eimREIÐIM
með ári hverju, þá fer virðing heimsblaðanna fyrir starfsemf
hans árvaxandi. Tjaldbúðarvikan, undir forystu hans í Cali-
forníu, dró að sér lærisveina frá flestum ríkjum þessa megin-
lands, og enda víðar úr löndum, en hér á Krishnamurti hið
þriðja aðalheimkynni sitt, bústaðinn Arya Vihara í Ojai daln-
um, sem hann gistir vor hvert á sinni árlegu hringferð kring-
um hnöttinn. Til tjaldbúðarviku hans í Ommen, Hollandi,
hefur fólk safnast undanfarin ár frá öllum löndum Evrópn,
og til hins árlega móts í Benares safnast að honum fólk
hvaðanæfa úr Austurlöndum. Mr. Krishnamurti er þannig orð'
inn samþjóðlegt athyglisefni.
Nú mun margur hyggja, að öflugum félagsskap, sem raeður
yfir miklum höfuðstóli, og stofnað getur til tröllaukins auglvs"
ingamoldviðris að amerískum sið, séu allir hlutir mögulegU'i
jafnvel það að láta »meistarann Kristc stíga niður í indverskau
pilt og gera úr honum heimsfræðara með yfirskyggingu 3
ákveðnum degi, ákveðinni stund, samkvæmt áður útsendu
fundarboði, sbr. Adyarfundinn 1925.
Hið merkilegasta við Mr. Krishnamurti er þó ekki það, að
heimsfræðaraembætti hans hefur verið auglýst með samskonar
orðkyngi og Ijóma eins og ný tegund af rakvélablöðum,
heldur ekki hitt, að félagið, sem hildur honum á floti, skuh
eiga fimm þúsund ekrur lands og kastala í Hollandi, geysileS
landflæmi í Californíu og drottinn veit hvað í Indlandi og
Ástralíu, því sjálfur hefur hann látið í ljósi óþökk sína á ÞV1
að bera vörumiða eins og heimsfræðaratitilinn, og það sem
einkennilegra er, hann hefur afneitað öllum skyldandi sif)a"
böndum bæði við Stjörnufélagið1 *) og Guðspekifélagið, enda
þótt hann sé kallaður höfuðsmaður hins fyrra, sömuleiðis v1^
frú Annie Besant sjálfa og alt hennar hyski, — að meistur-
unum í Tíbet ekki undanskildum, því sé hann krafinn sagua
um tilvist þeirra, þá yptir hann öxlum og svarar á þessa le$-
»Ég veit það ekki. Mér er sama. Ég get ekki séð, að þa^
skifti neinu rnáli, hvort til séu meistarar í Tibet eða ekki<- "
En sem kunnugt er, þá er tilvist hinna tíbetisku meistara em
1) Eftir að þetta er ritað, hefur Krishnamurti leyst Stjörnufélagið upp-
Ritstj.