Eimreiðin - 01.01.1930, Blaðsíða 122
102
RITSJÁ
eimreiðin
Úr kútnum mun réttast sá kotungur skjótt,
er kongshjarta í brjóstinu geymir.
Þá skrýðist hver melur og skriða og urð,
og skuggana ljósgeislar buga,
er æska vor leggur fram drengskapardáð;
þá dagar í gamals manns huga.
Og eftir því blómgast og blessast vort land
sem börnin vor mannast og duga.
Enn eru ótalin mörg kvæði í bókinni, sem vert væri á að minnast.
Guðmundi Friðjónssyni hefur í rauninni aldrei tekist að gera þjóÖ
sinni allri til hæfis. Þegar hann var ungur, bar hann hátt vopnin, og
hefur margoft átt í höggi við ýmsa af mikilhæfustu mönnum þjóðarinnar,
og sá dómur mun fylgja honum lífs og Iiðnum, að hann hafi sjaldan
ráðist þar á garðinn, sem hann er lægstur. A síðari árum hefur mönn-
um fundist hann hefla seglin um of, og vissulega eru margar ádeilur
hans á ungu kynslóðina unnar fyrir gýg. En tíminn er nógu. miskunsamur
til að breiða yfir alt, sem hægt er að gleyma, og þegar til kastanna
kemur, þá er það aðeins fátt eitt af því allra bezta, sem lifir af verkum
hvers manns. Hið bezta, sem Guðmundur Friðjónsson hefur ritað, mun
verða með því Ianglífasta, sem til er af skáldskap frá þessum tíma-
Bæði í ljóðum og lausu máli hefur hann sagt sannar sögur af íslenzku
fólki, sem nú er flest komið undir græna torfu, og horfið af sjónarsvið'
yngri rithöfunda. Þetta fólk, sem lifað hefur á efstu grösum íslenzkra
bygða, hefur hann tekið ástfóstri við, og lýst með nákvæmari skilningi
og þekkingu en nokkur annar maður, og með skáldverkum sínum
á þessu sviði hefur hann skapað merkilegan þátt í menningarsögu
þjóðarinnar. J. M-
Gunnar Gunnarsson: EN DAG TILOVERS OG ANDRE HISTO-
RIER. Gyldendalske Boghandel. 1929.
Gunnar Gunnarsson: SVARTFUGL. Roman. Gyldendalske Bog-
handel. 1929.
Gunnar Gunnarsson er afkastamikill rithöfundur. Tvær bækur sama
árið! En því aðeins er þessi frjósemi góð, að hún sé ekki á kostnað
vandvirkni og skáldlegra tilþrifa. Og mér virðist svo sem smásögur
þær, er finnast i safninu „En Dag tilovers", séu ekki svo gegnumofnar
sem skyldi, og ekki eins mikill skáldskapur í þeim og vant er um sögur