Eimreiðin - 01.01.1930, Side 96
76
FLÓTTINN ÓR KVENNABÚRINU
eimreiðin
járngrind, sem sett er á mitt gólf, en utan um grindina eru
negldar fjalir. Á grindinni er brent viðarkoli. En yfir alt saman
er strengd stór fóðruð ábreiða, sem nær út í horn á her-
berginu. í kring um þessa eldstó er raðað þykkum ábreiðum
með körfumynduðum koddum. Þar sitja menn eða liggi3 ^
daginn, og sofa þar einnig á nóttunni. Mikil óþægindi eru að
reyknum frá viðarkolinu. Mann svíður í augun undan honum.
Einnig leitar oft mikið af allskonar kvikindum í hitann. Þegar
Afganar eru heima, leggja þeir bera fæturna að glóðinni. En
úti ganga þeir berfættir, enda þótt alt sé þakið ísi og snjo.
En aldrei verða þeir kvefaðir, þótt ótrúlegt sé. Engir nema
tignir menn og efnaðir bera skóklæði. Afganinn klæðist einmg
þunnum, hvítum léreftsbuxum þó að um veíur sé, en á höfð-
inu hefur hann geysistóran túrban, sem hylur svo að segia
alt andlitið nema augun.
Mér hafði borist bréf frá Svíþjóð, þar sem skýrt var fra,
að mér hefðu verið sendir peningar til heimferðarinnar, og
bjóst ég við þeim á hverri stundu. En ég var kvíðin, treysh
ekki Afgönum, vissi, að ráðherrarnir voru mér óvinveittir, var
altaf í sífeldri óvissu um, hvort ég fengi að fara. Þessi óvissa
hélt fyrir mér vöku á nóttunni. Einnig átti ég mjög erfiða
aðstöðu, þar sem ég dvaldi. Ég var eina Vesturlanda-konan,
sem bjó einsömul í Kabul. Hvað eftir annað varð ég fVrir
allskonar móðgunum af Afgönum. Áleitni þeirra var svo mikil, að
ég fór að síðustu í þýzka klúbbinn til þess að leita ásjár. Þar
reyndu menn að hughreysta mig, og réðu mér í gamni til að taha
annaðhvort utanríkisráðherranum eða dómsmálaráðherranuin.
Það var svo sem ekki að lúta að litlu — að komast í tengd"-
við sjálfan konunginn! Hjálpfýsi Þjóðverjanna og umhygSl3
um velferð mína var meiri en svo, að ég fái fullþakkað. Efhr
langar bollaleggingar kom okkur saman um, að ég skym1
látast vera trúlofuð einum þeirra, og ætluðu þeir að annas
um, að fregnin um þessa trúlofun bærist um bæinn.
* *
*
161...
Barn stóð frammi fyrir jólatrénu ... systkini mín . • • ‘°r
eldrarnir.... Heit gleði yfir hátíðinni, með öllum ljósunum og
jólagjöfunum....