Eimreiðin - 01.01.1930, Page 128
108
RITSJÁ
EIMREIÐlN
í dag eru allir svanir í sárum,
söngurinn breyltur í þagnarmál,
héla á steinum, en blóð á bárum,
banvænt eitur í hverri skál.
Grasið er sölnað og ilmur enginn,
allir bátar settir í naust.
Að sævardjúpi er sólin gengin •—
sumarið liðið og komið haust.
í dag eru tár í allra augum,
allir með grátt og hélað hár,
trygðir feigar og brestir í bauguw,
barmur jarðar eitt opið sár.
Af liminu blöðin fölnuð falla,
fjúk í Iofti og veðragnýr.
Skuggarnir vefjast um alt og alla-
Angistin heltekur menn og dýr.
í dag er söngvarinn dauðahljóður,
í djúpið hrunin hver skýjaborg.
Enginn á föður og enginn móður,
enginn neitt — nema þögla sorg.
Hver von er druknuð í brimi og bárum,
hver bátur settur og lokuð naust.
í dag eru allir svanir í sárum —
sumarið Iiðið og komið haust.
Davíð Stefánsson hefur ort oftar og meira um ástina en flest önnuf
yngri skáid vor, og stundum tekist ágætlega. Beztu kvæðin þeirrar teS
undar í þessu nýja ljóðasafni hans eru „Kveðja", „Minning" og
fljúgum þangað“. — Kvæðið „Konan, sem kyndir ofninn minn“ er "U
þegar orðið „klassiskt" sýnishorn í nálega öllum ritdómum, sem birzt
hafa um síðustu bók Davíðs, svo ekki skal hér orðlengt um það. E" ®
annað kvæði mætti minna að lokum, sem vel gæti staðið sem einskonaf
lýsing alls þess Iandnáms, sem D. St. hefur farið um eldi óögáfu sinnar-
Það er kvæðið „Orlög", þar sem hann kemst meðal annars svo að orð>-
Eg hef farið um víða veröld Mig dreymdi um dýrölegt sunrar
og vilst um ólgandi höf, í dimmasta norðanbyl.
storkað koldimmri kólgu Þó sál mín syngi af gleði,
og kropið við opna gröf. er sorgin mitt undirspil.
Landnám D. St. er stórt, og engin furða þó að hann hafi stundun'
vilst. En hann hefur fært oss marga fallega perlu úr ferðum sínum un1
•J «
hin „ólgandi höf“. „Þó sál mín syngi af gleði, er sorgin mitt undirsp'
segir hann um sjálfan sig, og það er einnig sannmæli. Þetta undirsp''
sorgarinnar í ljóðum hans hefur bjargað honum frá því að verða hvers
dagslegur, og það verða þau Ijóð hans, þar sem þetta undirspil er sterk
ast, sem geyma nafn hans Iengst.