Eimreiðin - 01.01.1930, Blaðsíða 132
112
RITSJÁ
EIMREIÐIN
máli og óbundnu, sem hefur varanlegt gildi, og er einstakt í sinni röð,
að því leyti, að það eru konur einar, sem í það skrifa. Dropar komu
fyrst út árið 1927, og stendur þetta síðara hefti hinu fyrra öllu framar
að efni. Ýmsir vorra beztu listamanna hafa lagt þar á gjörva hönd, að
ritið yrði sem bezt búið að myndum og öllum ytri frágangi, en mest
mun þó um ráða smekkvísi útgefanda, hve vel hefur tekist. Efnið er að
vísu nokkuð misjafnt að gæðum, en ekkert af því, sem konurnar hafa
þarna að flytja, getur talist lélegt. Sum kvæðanna eru með snildarbragði,
og Svanhildur Þorsteinsdóttir hefur með sögunni „Sigrún" sýnt enn betur
en með æfintýrinu „ Kóngsdóttirin kveður" í „Dropum" 1927, að hún
hefur rithöfundarhæfileika, sem vænta má góðs af.
PERLUR heitir nýtt mánaðarrit, sem hóf göngu sína um síðustu ára-
mót. Flytur það aðallega sögur, þýddar og frumsamdar. Fyrsta hefli rits
þessa er vandað að öllum frágangi og prýlt myndum. Útgefendur eru
Kjartan 0. Bjarnason og Stefán Ogmundsson prentarar.
MITTEILUNQEN DER ISLANDFREUNDE, ársfjórðungsrit íslands-
vinafélagsins þýzka, flytur öðru hvoru ýmsar góðar greinir um íslenzk
efni. Meðlimir félagsins munu nú nál. hálft þriðja hundrað talsins. I
þrern síðustu heftunum af riti þessu, sem Eimr. hafa borist, er meðal
annars grein um náttúruverndun og þjóðgarð á íslandi (Naturschutz und
Nationalpark in lsland) eftir dr. Heilmut Lotz, grein um nýjar jarðfræði-
legar rannsóknir á Reykjanesi (Neue Forschungen auf Reykjanes) eftir
Quðmund Bárðarson, endurminningar eftir Heinrich Erkes um ýmsa
látna íslendinga, sem hann hafði kynst, svo sem Valtý Quðmundsson,
Bjarna Jónsson frá Vogi o. fl., grein um Jón Sigurðsson (Zum 50.
Todestage Jón Sigurdssons) eftir S. Remertz, og mjög skemtileg ferða-
minning frá Islandi (Quer durch Island) eftir Reinhard Prinz. Af þýð-
ingum úr íslenzku má nefna „Altarið“ eftir Friðrik Brekkan, sem birtist
í 4. hefti Eimreiðar 1928. Hefur dr. Marie Dierking þýtt það á þýzku.
Þá eru þarna einnig Vögguljóð eftir Davíð Stefánsson, þýdd af dr. Al-
exander Jóhannessyni. Auk þessa eru jafnan í hverju hefti ýmiskonar
stuttar fróðleiksgreinir um Island og íslenzk efni, flestar eftir ritstjórann,
prófessor W. Heydenreich í Eisenach, ennfremur ritfregnir o. fl.
Sv. S.