Eimreiðin - 01.07.1931, Qupperneq 16
216
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
eimreiðin
fulls. Stálkarlinn Stalin hélt
fyrir skömmu ræðu mikla,
sem vakti eftirtekt um allan
heim. Hann lýsti þar ýrnsum
örðugleikum, sem væru á
Stálkarl- framkvæmd
inn Stalin. kommúnismans
og taldi upp nokkrar um-
bætur og breytingar, sem
gerðar yrðu á hinu kommún-
istiska stjórnarfyrirkomulagi-
Hafa ýms blöð Vesturlanda
túlkað þessa ræðu Stalins
þannig, að hann væri nú
orðinn kommúnismanum frá-
hverfur. Meðal annars boð-
aði Stalin, að gerbreyta yrði
öllu launafyrirkomulagi í ráð-
stjórnarríkjunum, launin yrðu
að greiðast í réttu hlutfalli við það verk, sem af hendi sé leyst,
hærra kaup beri að greiða fyrir erfiða vinnu og þá vinnu, sem
krefjist sérþekkingar, en fyrir létta algenga vinnu. Verðlauna beri
dugnað og ráðdeild. Útaf ræðu þessari skrifar fréttaritari blaðsins
„Daily Express“ í Lundúnum, C. ]. Ketchum, sem dvaldi í
Rússlandi síðastl. vetur, til þess að kynna sér ástandið þar:
»Fimm ára áætlunin hefur ekki staðist. Rússneska tilraunin
stórfelda, að breyta bændaþjóð á örstuttum tíma í iðnaðar-
þjóð, hefur mistekist — og draumur kommúnista er að engu
orðinn. Það er þetta sem Stalin er búinn að sjá og lætur nú
tilkynna heiminum«. Aðrir telja, að fimm ára áætluninni sé
engin hætta búin. Hún muni verða frámkvæmd út í æsar, ef
til vill með eitthvað breyttum rekstursaðferðum, en í höfuð-
dráttum eins og hún var lögð í upphafi. Stalin virðist að
minsta kosti fastur í sessi, þó að hann sjái þörf endurbóta á
ýmsu, eftir því sem áætlunin kemst í framkvæmd. Þessi skó-
smiðssonur frá Kákasus, sem lagði af stað út í heiminn,
þrettán ára gamall, — með aleiguna, einn geitarmjólkur-ost,
í malnum, hefur þegar sigrast á öllum sínum mörgu keppi'
Stalin.