Eimreiðin - 01.07.1931, Qupperneq 44
244
MANNFLOKKAR OQ MENNING
eimreiðin
manna og hefur frekar litla mannþekkingu. Norrænn maður
lætur lítt í Ijós tilfinningar sínar, oft af einhverri sérstakri
viðkvæmni eða blygðunarsemi. Hann er djarfur, oft fífldjarfur,
forsjáll og langsýnn, en getur og verið léttúðugur og latur á
köflum. (Jtþrá og mentunarþrá eru ríkar hjá honum. Það
rennur stöðugur straumur norrænna manna úr sveitunum >
borgirnar og úr lægri stéttunum í hinar æðri. Norræna kynið
er alveg sérstaklega auðugt að mönnum með frábært andlegt
atgervi, »skapandi« mönnum. Samkvæmt rannsóknum Odins
eru flestir skapandi menn Frakklands úr þeim héruðum, þar
sem fólk er hæst, höfuðlengst og ljósast, og eftir stéttum eru
78,5 °/o þeirra af aðli eða úr embættismannastétt og líkum
stéttum, sem eru aðeins lítill hundraðshluti íbúanna, en auð-
ugastar að norrænu blóði. Sama hefur Galton fundið um
norrænustu hluta Englands. Flestir menn, sem sköruðu fram
úr á endurfæðingartímabilinu á Italíu, voru meira og minna
af norrænu kyni (Woltmann). Mjög norræn lönd, eins og t. d.
Noregur og Svíþjóð (og ísland), eiga tiltölulega mjög marga
frábæra menn. Ennfremur er tiltölulega minst um glæpi og
afbrot í þeim héruðum Norður-Þýzkalands, þar sem norræna
kynið er fjölmennast.
Vestræna kynið er fjörugt og ástríðufult, léttlynt og við-
kunnanlegt í umgengni, ræðið og (fyrir norrænan smekk) mál-
skrafsmikið, fljótt til reiði og fljótt til sátta, fyndið, óforsjált
og öfgafult, — oft latt og vantar framkvæmdaþrek norræna
kynsins. Vestrænn hugur lifir meira í nútíðinni, norrænn hugur
í framtíðinni, — sá vestræni beinist meir að hinu ytra, sá
norræni að hinu innra. Trúarlíf norræns manns stendur í nánU
sambandi við samvizku hans, en hjá hinum vestræna við skiln-
ingarvitin (skraut og skart) og hjartagæði þau, er oft ein-
kenna vestrænt fólk; norrænn maður er af náttúrunni mót-
mælandi, en vestrænn maður katólskur, gæti maður sagt-
Vestræna kynið er einatt grimt og vont við skepnur.
Austræna kynið er íhugult, iðið, sparsamt og þröngsýnt,
tortryggið, seinlátt og þolinmótt. Það er hagsýnt, og hugur
þess beinist að hinu nálæga og næsta. Hjá andlegri rnönnum
af austrænu kyni ber mikið á rólegri skoðun og kyrlátri
ánægju með hlutina. Trúarlíf austræns fólks er öllu heitara,