Eimreiðin - 01.07.1931, Qupperneq 48
248
MANNFLOKKAR OG MENNING
eimreiðin
sýnir, fæst börn. Það er herskátt, og manntjónið í styrjöldum
lendir tiltölulega mest á því. I Bandaríkjaherinn í styrjöldinni
miklu valdist sérstaklega fólk af norrænu kyni, — svo segja
Osborn (í formálanum að bók Grants: »The Passing of the
Great Race«) og franski mannfræðingurinn de Lapouge. En
yfirleitt eru styrjaldir skaðlegar fyrir öll kyn: þeir eru drepnir,
sem duglegastir eru, en hinir sitja heima og auka kyn sitt,
sem eru eitthvað fatlaðir eða veilir (»öfugt úrva!«).
Ef nú, eins og áður er sagt, norræna kynið er sérstaklega
auðugt að frábærum mönnum, þá gæti hugsast, að menning-
arhnignun Indverja, Persa, Grikkja, Rómverja og nú síðast
Vesturlanda stafaði af hvarfi hins norræna kyns. Rómönsku
löndunum (Italíu, Spáni, Portúgal og jafnvel Frakklandi) hefur
þegar hnignað að menningu af þeim orsökum, og nú er röðin
komin að germönsku þjóðunum: Þjóðverjum, Englendingum
og Ameríkumönnum, þó að þar sé að vísu af meira norrænu
blóði að taka.
Það var franskur maður, Arthur greifi Gobineau (1816—
1882) , sem fyrstur vakti athygli á þýðingu hins norræna kyns
fyrir þjóðlífið og menninguna í riti sínu »Essai sur l’inégalité
des races humaines« (Um mismun mannflokkanna), 1853—
55. Síðan hafa margir fleiri rannsakað málið og komist að
sömu niðurstöðu, t. d. Englendingurinn H. St. Chamberlain
(1855—1927), Þjóðverjinn Otto Ammon (1842—1915), Frakk-
inn Georges Vacher greifi de Lapouge (f. 1854), Ameríku-
mennirnir Madison Grant (f. 1865) og Lothrop Stoddard (f>
1883) , Þjóðverjinn Hans F. K. Gúnther o. fl.
Ameríkumenn hafa þegar tekið í taumana hjá sér og reynt
með innflutningslögum sínum að auka tiltölulega innflutninS
fólks úr norðvesturhluta Evrópu, en minka innflutninginn frá
Suður- og Austur-Evrópu, enda var tími til kominn, því að
1907 voru innflytjendur þaðan (úr Suður- og Austur-Evrópu)
orðnir 76,2 o/o allra innflytjenda, og eftir amerískum útreikningi
hafa Bandaríkin síðan um aldamót tekið á móti 6 rniljónum
manna, sem verða að teljast »lítilfjörlegir« (inferior) eða
»mjög lítilfjörlegir* (very inferior) að erfða-eiginleikum. Enn-
fremur hafa þeir byrjað á að kynbæta alla mannflokka hjá
sér með því að gera ófrjóa glæpamenn og aðra, sem haett