Eimreiðin - 01.07.1931, Side 56
256 BLÖNDUN STEINSTEVPU eimreiðiN
íslendingar eru of fátæk þjóð til þess að byggja steinhús, sem
verða ónýt á tiltölulega stuttum tíma.
Mótin fyrir veggi á íbúðarhúsum hér á landi eru illa gerð
og steinsteypan sérstaklega hroðvirknislega sett í þau. Það
má sjá smásteina í hrúgu saman á einum stað á yfirborði
veggjanna, með næstum engu bindiefni, en á öðrum stað er
kannske ekkert annað en steinlím og sandur. Þannig gerðir
veggir eru ekki vatnsþéttir, og það er ómögulegt að þeir
endist mjög lengi. Til þess að hylja hroðvirknina við bygg-
ingu veggjanna, er klest utan á húsin blöndun af steinlími
og fínum sandi, sem verður þar að þunnri, harðri skel. Hér
um bil hvert einasta steinhús og yfir höfuð alt, sem gert er
úr steinsteypu hér á íslandi, hefur þessa skel utan á yfir-
borði steypunnar. Það má einnig sjá alstaðar, þar sem þessi
skel hefur verið notuð, að hún er öll sprungin, og er víða
fallin af og mun falla af á komandi árum. — Þess gerist
ekki þörf að fjölyrða meira um hús og önnur verk úr stein-
steypu hér á landi. Þau sýna sig sjálf fyrir þá, sem vilja
veita þeim eftirtekt.
Eg vil nú reyna að skýra frá þýðingarmestu atriðunum,
sem ber að taka til greina við blöndun og meðferð stein-
steypu. Og verður það gert í ljósi nútímaþekkingar á þessu
byggingarefni, og mest farið eftir aðferðum þeirra, sem mest
nota af sleinsteypu, en það eru Bandaríkjamenn.
Á seinni árum hefur steinsteypa verið rannsökuð meira
vísindalega en nokkurt annað byggingarefni. Aðalatriðin við
blöndun steinsteypu og eiginleikar steinsteypu eru nú svo
vel þekt, frá vísindalegri rannsókn og reynslu, að auðvelt er
að útreikna blöndun steinsteypu, svo að hún fullnægi þeim
kröfum, sem kunna að vera settar, undir mismunandi kringum-
stæðum.
Það er algengt erlendis að rannsaka nákvæmlega öll þau
efni, sem fara til steypunnar, og þar með steinlímið. Við öll
hin stærri verk í Bandaríkjunum er steinlímið sent á efna-
rannsóknastofnanir, áður en það er notað, og prófað hvort
það hefur þá eiginleika, sem krafist er af góðu steinlími-
Það sama er einnig gert með sand, möl og vatn. Eftir að
alt þetta, sem fer til steypunnar, hefur verið rannsakað, sr