Eimreiðin - 01.07.1931, Page 120
320
RITSJÁ
EIMREIÐIN
höndum Rússa. Ef Danir héldu Qrænlandi áfram, yrðu Norðmenn alveS
króaðir af og reknir úr norðurhöfunum fyrir fult og alt.
Grænlandsmálið svonefnda hefur nú verið lagt fyrir gerðardóminn i
Haag. Ritgerð þessi gefur góða hugmynd um, hvernig málinu horfir við
frá sjónarmiði Norðmanna. Höfundur hennar, Ella Anker, sem hefur
verið fréttarifari norskra blaða um fjölmörg ár og er nákunnug stjórn-
málum Evrópu, veit vel hvers virði Norðmönnum væri að öðlast yfir'
ráðin yfír Grænlandi, þessu landi framtíðarinnar, flugleiðanna, málmanna,
kolanna, steinolíunnar, sem hún kallar svo í niðurlagi greinar sinnar. En
hvaða afstöðu hafa íslendingar tekið í þessu máli? Þingið í sumar ræddi
um að gæta hagsmuna íslands í Grænlandsmálinu, og síðan hefur stjórnm
falið Einari prófessor Arnórssyni einhverja rannsókn í því. Við það situr
enn sem komið er.
ÁRBÓK HAGSTOFU ÍSLANDS 1930. — Bók þessi, sem et
IV + 150 bls. að stærð, flytur margvíslegan fróðleik um íslenzka þjóð
hagi og er ágæt handbók öllum þeim, er fylgjast vilja með í þeim efnum-
í henni eru skýrslur um mannfjölda, heilsufar og heilbrigðismál, faS*
eignir og landbúnað, fiskveiðar og hlunnindi, verzlun og iðnað, sam
göngur, peningamál, Iánstofnanir og vátryggingar, verðlag og neyzlu, lí®
mál, réttarfar, mentamál, kosningar og ýmislegt fleira, sem við kemur
íslenzkum högum. Ennfremur eru í ritinu nokkrar skýrslur um alþjóð3
hagi, svo sem um flatarmál, íbúatölu og mannfjölgun í erlendum ríkjun'i
mannfjölda í borgum með minst 100.000 íbúa, skifting mannfjöldans
ýmsum löndum eftir alvinnu, kynferði og aldri, um hjónavlgslur, f®
ingar og manndauða, búpening og fiskafla í ýmsum löndum, póstreksturi
ritsíma og talsíma, myntverð og gullforða ýmsra landa o. s. fiv.
Það er í fyrsta skifti sem Hagstofa íslands gefur út Árbók í líkiuS
við talfræði-árbækur annara Ianda, og er það í rauninni þarfara ve
öllum almenningi en sjálfar hagskýrslurnar, sem aldrei geta orðið e’nS
aðgengilegar til fróðleiks eins og þegar meginefni þeirra er dregið sarnau
í eitt, svo sem hér er gert. Væri því æskilegt, að bók eins og ÞeSS|
kæmi framvegis út sem oftast. Virðist sem ríkið gæti vel sparað sér 3
láta prenta sjálfar hagskýrslurnar, ef slík bók sem þessi kæmi út árleS3'
jafnframt Hagtíðindunum. Sv.