Eimreiðin - 01.01.1934, Síða 25
* EIMREIÐIN
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
5
hl höfuðsins, hreinskilin, hispurslaus frásögn, spegill, sem
enduruarpaði skýrri og sannri mynd af lífinu, þegar öldur þess
r>sa hæst — og snerti um leið hvern einasta mann. Sagan
átti engan sinn líka. Hún kom eins og bylting. Hún var bylt-
■ng. Menn vöknuðu eins og af dvala við lestur hennar.
* *
*
Bölsýnin er eitt af skýrustu einkennum nútímans. Að vísu
hefur hún verið í för með mönnunum á öllum öldum, en
]j-ls »nin sjaldan eða aldrei eins og nú. Hún gerir meira
og minna vart við sig hjá leiðtogum og rithöfund-
uni stórþjóðanna, einnig hjá þeim bjartsýnustu, eins og Wells.
O3 hún er því eðlilega ekki síður áberandi í ræðu og riti hjá
smáþjóðunum. Einn af nafnkunnustu mentamönnum vorum lét,
■ hugvekjum sínum um sjálfstæðismál, sem hann flutti í út-
varpið nýlega, orð falla á þá leið, að íslenzka þjóðin væri svo
smá og umkomulaus, að hún gæti aldrei eignast fullkominn há-
skóla, aldrei fullkomið leikhús né hljómsveit og ætti helzt ekki
að ganga í Þjóðabandalagið meðan íslenzka ríkið vildi ekki verja
a- m. k. annari eins upphæð til styrktar íslenzkum stúdentum
erlendis eins og árgjaldinu til Þjóðabandalagsins næmi. Þessi
maður hefur sjálfur dvalið langdvölum við erlenda háskóla,
hl þess að fá sem glegsta útsýn yfir menningarstrauma þá, sem
uppi eru, og komast að niðurstöðum eins og þessum. Dapur-
Isgar niðurstöður um framtíðarmöguleika einbúans í Atlants-
hafi eru síður mótaðar af reynslu liðinna alda, sem geymir
daami um að fámenn, fátæk og jafnvel einangruð þjóðfélög
hafi hafið sig til vegs og virðingar, orðið merkisberar
annara þjóðfélaga og stundum fyrirmyndir stærri ríkja, heldur
en af hinni almennu bölsýni samtíðarinnar, sem hvarvetna
er svo áberandi meðal menningarþjóða nútímans. Þessi and-
^eSa kreppa, sem nú geysar víða um lönd, engu síður en
fjárhagskreppan, á sér eðlilegar orsakir, en hún kemur Wells
Þannig fyrir sjónir sem aðeins sé um stundarfyrirbrigði að
r®ða. Einkenni þessarar andlegu kreppu er þreyta, van-
*raust á sjálfum sér og lífinu, ólund, kvíði, slappleiki
' stuttu máli: taugaveiklun af verstu tegund.