Eimreiðin - 01.01.1934, Qupperneq 54
34
Á TÍMAMÓTUM
EIMREIÐIl'f
og búfé, jafnvel fyrir það eitt að vera duglegir bændur og
eiga meira en eina kú (Rússland). Aðrir hafa verið reknir fra
jörðum sínum og neyddir til þess að vinna á sarnlagsbúum-
Er auðvitað ilt að búa við slíkt ófrelsi.
Heimspekingurinn Plato fann það meðal annars einvalds-
stjórn til foráttu, að valdhafinn þyrfti í raun og veru að vera
alvitur, vita deili á öllu í ríki sínu, ef vel ætti að vera, en
slíkt væri ekki á neins manns færi. Svo er þetta enn, og
færri myndu hryðjuverkin hafa verið unnin, ef foringjarni''
hefðu vitað hvað undirmenn þeirra höfðust að. Að þessu leyt'
stóð lýðstjórnin miklu betur að vígi, því oftast er hverjum
þingmanni kunnugt um sitt hérað, þarfir manna þar og óskir,
og frjálst er honum að bera þær fram, bæði á þingi og við
landsstjórnina, og segja til þess opinberlega hvar skórinn
kreppir. Þetta er ef til vill einn af helztu kostum Iýðræðisins-
Mikið hefur verið af því látið, að lýðræðið eitt trygð'
mönnum að alt leynimakk stjórnarinnar og stjórnmálamanna
yrði opinberlega kunnugt. Mátti þá finna að því, ef lastvert
var, og gat varðað stjórnarskiftum. Þetta átti að vera hlut-
verk stjórnarandstæðinga, sem Englendingar gefa virðingar-
nafnið »stjórnarandstæðingar hans hátignar konungsins« og
telja jafn nauðsynlega og sjálfa stjórnina. Þingræðið hefur að
vísu mikið gert í þessa átt og þó minna en til var ætlast,
því mikið fer fram á bak við tjöldin og er haldið leyndu-
A þingunum er flest ákveðið á flokksfundum, en opinberu
þingfundirnir eru lítið annað en leikur fyrir kjósendur. ViH
því stundum fara svo, að stjórnarandstæðingar vaða reyk, er
þeir finna að gerðum stjórnarinnar, ýmist gera henni getsakir
eðu vita alls ekki um sumt ráðabrugg.
I Iýðstjórnarlöndunum fer allajafna svo, að hver stjórn er
»auri ausin«, engu síður en askur Yggdrasils, og flestum sví-
virðingum dróttað að henni. Þetta rýrir stórkostlega alla virö-
ingu fyrir landsstjórninni. Það er eins og landslýðurinn hafi
ekkert, sem treysta megi og bera lotningu fyrir. Endalaus
stjórnarskifti hafa og sömu áhrif. Einræðisstjórn er miklu betur
sett að þessu leyti, ef foringinn er meira en meðalmaður,
sérstaklega ef hún hefur lengi setið að völdum. Ekkert
tengir heimsveldi Breta betur saman en konungurinn, sein