Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1934, Page 58

Eimreiðin - 01.01.1934, Page 58
38 SVONA VAR SÆMUNDUR EIMREIÐIN undan þeim. Hvað eftir annað verða þeir að taka á til að komast úr sporunum, og þeir mega hafa sig alla við að detta ekki áfram, þegar þeim skrika fætur. Þegar svona stendur á, er vinnan bæði erfið og leiðinleg. Menn tala ekki hver við annan. Þeir hafa engan tíma til þess og heldur enga löngun. Þeir bara moka upp í hjólbörurnar, aka þeim að lyftivélinni, aka þeim til baka, fylla þær á ný, og svo koll af kolli. Menn komast í vont skap, og það er ekki nema eðlilegt. Menn komast alt af í vont skap, þegar þeir leggja fram mikið erfiði, en sjá lítinn eða engan árangur. Hvernig sem þeir hamast, gera þeir ekki betur en að hafa við. Reykingamennirnir geta ekki fengið sér reyk, því að bæði vindlingarnir og eldspýf' urnar, sem þeir bera á sér, hafa blotnað. Neftóbaksmennirnir geta því aðeins fengið sér í nefið, að þeir hafi tóbakið í pontum eða hornum og geti stútað sig á því, sem kallað er. Þeir, sem munntóbak nota, eru þarna bezt settir, því að þeir geta haft rullustykki í höfuðfatinu, sem þeir taka svo ofan til að fá sér tuggu. Auðvitað krympa þeir sér ekki, þótt eitthvað sé af vatni eða grút með. Sumum finst þetta nú ef til vill lítilfjörlegt aukaatriði, hvort menn geti komið við tóbaksnotkun eða ekki. Þeir hinir sömu ættu bara að reyna slíkar að- stæður. Þeir myndu fljótt sanna, að í svona vinnu er tóbakið fyrsti og síðasti bjargvættur verkamannanna. Hafi þeir tóbak, geta þeir sætt sig við að vinna í sex klukkustundir, án þess að fá vott eða þurt, — geta sætt sig við að finna regnvatnið og síldargrútinn hripa inn úr gegndrepa hlífunum og seytla niður eftir líkamanum. En vanti þá tóbak, segja öll þessi óþægindi til sín á eftirminnilegan hátt. Þá verða þeir ergilegir út í tilveruna, eins og hún birtist þeim þarna niðri í þrónni, í rigningunni og illviðrinu. Þeir bölva þessum samastað og óska þess, að atvinnurekendurnir, sem eiga þessa síldarbræðslustöð, væru sjálfir komnir niður í þróna og ættu að vinna þar sem hverjir aðrir óbreyttir verkamenn. Þeir vissu þá hvað það væri. II. Við, vökufélagar Sæmundar, kölluðum hann ýmist Sæmund viljablóð eða Sæmund sóða, eftir því hvernig á okkur la. Bæði nöfnin átti hann fyllilega skilið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.