Eimreiðin - 01.10.1937, Blaðsíða 10
354
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
eimreiðin
ins, gera hveraorkuna arðbæra, vinna málma úr jörð svo að
arðberandi verði, — því að enga atvinnuvegi er heilbrigt að
stunda aðra en þá, sem bera sig án stuðnings frá ríkinu. Sam-
vinna i atvinnumálum á heilbrigðum áhættugrundvelli þeirra
einstaklinga, sem saman vinna, er æskilegasta atvinnuformið.
En að baki öllu þessu margþætta fullveldisstarfi þarf einhuga
stjórn og einhuga þjóð, sem skapa vill hér sjálfstæða þjóð-
menningu, lag'aða eftir landsháttum og með djúpar rætur i
íslenzkum jarðvegi. Ef ættjarðarástin opinberast í athöfn, þ:l
er hún eins sterk og heit eins og á dögum Jónasar og Bjarna,
og þá getur þjóðin magnað þjóðhetju sinni, Jóni Sigurðssynn
„sigurfull og þakkargjörð“ í dag án þess að fyrirverða sig 1
hans augum.
En eitt verður að varast á þeim undirbúningstíma, sem 1
hönd fer undir það starf, að fullkomna sjálfstæði lands og
þjóðar. Enginn einn stjórnmálaflokkur, ekkert flokksfélag eða
sérhagsmunastefna má gera fullveldismál áranna 1940—1943
að sínum málum. Ef þau mál dragast inn í flokkabaráttuna, ei'
farsælleg framkvæmd þeirra vonlaus. Þetta hafa líka allh'
flokkar alþingis virt og viðurkent, fyrst á þinginu 1928 og nu
aftur á þinginu í vor. Meðl'erð þingsins á fullveldismálunum
í bæði þessi skifti er alþingi til sóma og sýnir, að hér er u®
að ræða mál allra flokka, allrar þjóðarinnar. Á þeim einum
vettvangi, vettvangi allra landsmanna óskiftra, verða þau borin
í'ram til l'arsællar lausnar á þeim mikilvægu tímamótuni 1
sögu þjóðarinnar, sem í hönd fara.