Eimreiðin - 01.10.1941, Blaðsíða 70
406
JARÐSTJÓRNFRÆÐISTÖÐIN í MUNCHEN
EIMREIÐIN
vel væri á haldið. Þeir kynntust mjög náið, og Hitler varð
brátt eins konar lærisveinn þessa vísindalega þjálfaða hern-
aðarsérfræðings, og trn Iiitlers á hann hefur stöðugt styi'kzt
við hverja nýja í'áðleggingu, sem i'eynzt hefur áreiðanleg og
komið að tilætluðum notum. En slíkar ráðleggingar Haus-
hofers eru nú orðnar margar.
Þegar verið var að undiibúa inni'ásina í Tékkóslóvakíu árið
1938, var herstjórnin þýzka hi'ædd um, að Frakkar myndu
aldrei þola slika innrás og koma Tékkóslóvakíu til hjálpai'.
Haushofer sagði, að ekkert væri að óttast frá Frökkum, þeir
hvorki gætu né vildu koma Tékkum til hjálpar. Reynslan
sýndi, að Haushofer hafði rétt fyrir sér. Haushofer sagði fyrir>
að það myndi taka 18 daga að sigra Pólland. Von Bi'auchitsch
hershöfðingi varaði við hættum, sem þýzka hernum gæti stafað
af rigningum og vatnavöxtum í Póllandi. Haushofer sagði mjög
litlar líkur til slíks. Svo varð og, að ekki rigndi í Póllandi
meðan Þjóðverjar voru að taka landið. Þýzka herstjórnin vai'
í vafa um, að árásin á Noreg myndi takast. En Haushofei'
sagði, að hún myndi ganga að óskum. Von Brauchitsch hers-
höfðingi vildi undir eins ráðast inn í Frakkland, er stríðið
hófst. Haushofer ráðlagði Hitler að bíða, unz þófið og þýzki
áróðurinn með Frökkum hefði grafið nægilega um sig. Hei'-
ferðirnar í Afríku og á Balkanskaga hófust ekki fyrr en Haus-
hofer sagði til, og loks er það hátíðlegt fyrirheit dr. Haus-
hofers til Hitlers, að því er Frederic Sondern skýrir frá, uð
Þýzkaland nái yfirráðum á Kyrrahafi til þess að geta orðið
alls ráðandi i Evrópu og fullkomið heimsveldi.
Það var dr. Haushofer, sem kenndi Hitler að hugsa stói'-
veldisdrauma þá, sem ráðið hafa í utanríkismálum Þýzkalands
undanfarið, og las honum fyrir XVI. kapítulann í bók hans
Mein Kampf, þar sem lögð eru drögin að stjórnarstefnu Hitlei's
í utanríkismálum. Það var því ekki nema eðlilegt, að Hitle1
tæki dr. Haushofer undir eins í þjónustu sína árið 1933, er
Hitler komst til valda, enda stóð ekki á því. Dr. Haushofe1-
fékk algert sjálfræði um alla tilhögun starfsemi sinnar
næstum ótakmörkuð fjárráð. Hann átti að sjá um, að hin full'
komnasta þekking væri jafnan við hendina um styrk og veik-
leika allra andstæðinga og gera nákvæmar áætlanir um frani-