Eimreiðin - 01.10.1941, Blaðsíða 88
424
UM ÁÐUR ÓPRENTAÐ BRÉF OG IvVÆÐI
EIMREIÐlff
um og öðrum, ekki sízt vini hans Matthíasi Jochumssyni.
Þess skal aðeins getið, að Sumarliði var með efnilegustu
ungum mönnum á Vestfjörðum og Breiðafirði á sinni tíð, lék
allt í höndum hans: sjómennska, búskapur, bóknám, lista-
smíði á gull og silfur, héraðsstjórn og þjóðmál. Þótt hann
mætti heita alveg sjálfmenntaður, þá nam hann gull-, silfur-
og úrsmíði bæði innan lands og utan (í Kaupmannahöfn)-
Hann var mikill stuðningsmaður Jóns Sigurðssonar. En það
sem merkast er af honum að segja í sambandi við bréf
Matthíasar, er það, að hann lagði fram fyrstu 50 spesíurnar
frá sjálfum sér til þess að koma Matthíasi á skóla. Fékk hann
féð í hendur Brynjólfi Benediktssyni kaupmanni í Flatey, sem
hann vann til þess að bindast fyrir skólastyrk til Matthíasar.
Um tillag Sumarliða vissi enginn, og ekki Matthías sjálfur,
þótt þeir Sumarliði væru góðvinir og stallbræður, þar til hann
gat þess sjálfur í ævisöguágripi sínu. Er ekki ólíklegt, að hon-
um hafi þótt því fé bezt varið, þess er hann hafi af höndum
greitt um sína daga, og' mátti hann vel líta svo á.
Það er næstum víst, að þessi tvö bréf þeirra feðga, Jochunm
og Matthíasar, eru fyrstu bréfin sem þeir skrifa Sumarliða
vestur um hafið. Jochum segist ekki hafa haft „adressi“ hans
áður, en Matthías ráðgerir að skrifa honum nú héðan af a-
m. k. einu sinni á ári. Þó ekki hafi orðið af því í bókstaflegr1
merkingu, er sennilegt, að alhnörg bréf frá Matthíasi til
Sumarliða séu ókomin í leitirnar eða kannske týnd ineð öllu-
Víst er það, að þegar séra Runólfur Marteinsson skrifaði
dánarminning Súmarliða (d. 29. marz 1926) í Lögberg, l):l
getur hann þess, að síðasta bréf Matthíasar hafi verið dagsett
á Akureyri 1. sept. 1909 og tilfærir úr því þessar línur: „ErU
nú um 60 ár síðan æskuvinátta okkar stóð með mestum blóma,
og betri eða jafngóðan og ósérplæginn vin eignaðist ég aldrei
né þekkti en þig á yngri árum.“ Undirskrift: „Matthías fra
Skógum.“
Um Sumarliða Sumarliðason, fólk hans og afkoinendur,
verður að vísa til þessara greina:
„Ferðasaga“ eftir Friðrik J. Bergmann, Almanak Ó. Thor-
geirssonar 1905, bls. 41—43. F. J. Bergmann var aldavinur
Sumarliða.