Eimreiðin - 01.04.1953, Blaðsíða 36
108
YFIRLITSSAGA SKÓGVAXTAR
ElMnEIÐIP'
Upplýsingar jarðabókarinnar ná til landsins alls nema Austui'-
lands; handritið af lýsingu jarða þar glataðist. Veitir jarðabókii'
því engar upplýsingar um Hallormsstaðaskóg og aðra skóga aust-
anlands.
Hálfri öld siðar ferðuðust þeir um landið Eggert Ólafsson og
Bjarni Pálsson. Meðal annars, sem þeir kynna sér, er vöxtu1,
skóga og skóganytjar fyrr og síðar. Birkitegundir telja þeir tvser,
skógarbirki og kjarrbirki. Auk þess nefna þeir reyni, fjalldrap3
og víði. Stórvaxnasta birkið er notað sem húsarefti, hið smávaxH'
ara, ásamt limgreinum af raftbirkinu, er haft til kolagerðar og
eldsneytis, fjalldrapinn er rifinn til eldsneytis.
Stórvaxnastir eru Húsafellsskógur og Fnjóskadalsskógur. Hall'
ormsstaðaskóg nefna þeir ekki sérstaklega, hvorki í þessu sarn-
bandi né öðru. Virðist sem hann hafi þá ekki verið hinum jafu
stórvaxinn. Stærstu trén i Húsafells- og Fnjóskadalsskógi eru
—12 álna há, miðlungstré 4—6 álnir. Gildleiki hærri trjánna
er líkur sem handleggur, hinna minni, 3—4 þumlungar í þver-
mál.
Smávaxnari skóga geta þeir hér og þar um Borgarfjarðar-
hérað, í Mýrasýslu, á Barðaströnd, í dölum á Vestfjörðum, a
Árskógsströnd og í Laufássókn, Ásskógs í Kelduhverfi, á Jökuldal
og um Fljótsdalshérað víða, á Búlandsnesi, í Hornafjarðarhéraði
austanverðu, vestast í Öræfasveit, á Síðu og í Þingvallahrauni-
Víðlendi Húsafellsskógar telja þeir: Lengd nálægt 1 míla og
breidd um mílufjórðungur, það er skógur megi kallast. Er svo
að skilja, sem smáskógur hafi verið allmiklu víðfeðmari. Segja
þeir Húsafellsskóg þriðja stærsta skóglendi á landinu, en geta
ekki um, hver hin hafi verið. Líklega hafa þau verið Fnjóska-
dalsskógar og Hallormsstaðaskógur með öðru nálægu skóglend1
um Austur-Hérað. I Húsafellsskógi og á Staðarhraunseyrum geta
þeir um fauskatré. Á síðarnefnda staðnum segjast þeir hafa árið
1754 séð fjöld „hvítra, skininna birkitrjáa“, hafi þar að sög11
kunnugra verið fagur, beinvaxinn stórskógur. Er það eitt dæm1
þess, að skógaauðn hefur orðið hér á landi af fleiri orsökum en
áníðslu ábúenda jarðanna.
Skógar telja þeir, að hafi verið miklu stórvaxnari fyrr á öld'
um. Til marks um það segja þeir, að 100 árum fyrr hafi verið
svo hávaxin tré i Fnjóskadal, að stofn þeirra upp til hliðargreina