Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1953, Side 62

Eimreiðin - 01.04.1953, Side 62
134 HÖFUM VIÐ LIFAÐ HÉR ÁÐUR? eimreibi1* hún í æsingu, að þarna hefði hún átt heima og heimtaði, að hún fengi að fara þangað þegar í stað. Foreldrar stúlkunnar vildu ekki hlusta á þessa vitleysu og neit' uðu henni um þetta. Hún lagðist þá veik, og læknirinn, sem sóttur var til hennar, ráðlagði foreldrunum að fara með hana til Benares og sjá húsið, því að þá kynni hún að læknast af þessum firruiu. sem sóttu á hana. Þetta var gert, og maðurinn, sem hún sagði að væri sonur sinn' reyndi hana á allan hátt, sýndi henni ættargripi og lét hana segja sér sögu þeirra. Allt þetta gerði hún af hinni mestu nákvæmn'. og skeikaði hvergi frá því rétta í frásögn hennar. Meðal annars sagði hin tólf ára gamla ,,móðir“ sínum sextin ára gamla „syni“ ótal margt úr lífi hans frá því hann var barn> og allt, sem hún sagði, var nákvæmlega rétt. Hvernig vilja menn skýra svona furðusögur? Sumir vilja af" greiða þær allar í einu með því að segja þær hugarburð eða upP" spuna frá rótum. En það er ekki hægt. Til þess eru þær sumar of vel vottfestar. Endurholdgunarkenningin er mikið rædd enn í dag, eins og svo oft áður. Margir mestu andans menn og sniU' ingar, sem uppi hafa verið allt síðan Origenes kirkjuföður leið — og enda lengra aftur í tímann, hafa trúað á hana. Margir gera það enn í dag. Þeir, sem hafa orðið fyrir einhverri reynslu um þessi efni, seH1 styrki þá trú, að endurholdgun eigi sér stað, ættu að senda Eir*1' reiðinni frásagnir af þeirri reynslu sinni með leyfi til að birta þ®r' Frásagnirnar verða birtar undir dulnefni, ef óskað er. Nöfn þeirra. sem segja frá reynslu sinni í þessum efnum, verða þá varðveit* og ekki birt nema með þeirra leyfi.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.