Eimreiðin - 01.07.1953, Síða 18
170
UPPHAF ERKISTÓLS 1 NIÐARÓSI
eimreidiN
Albínó. Hann var af enskri ætt og hafði hafizt til mikils vegs í
Róm sakir frábærra hæfileika og dugnaðar. Var hann að lokum
kjörinn páfi haustið 1154, og er hann eini Englendingurinn, sem
setið hefur á páfastóli.
Nikulás kardináli neytti þess, að konungdómur stóð höllum
fæti í Noregi, og innleiddi nýja siðu innan norsku kirkjunnar-
Slíkt var auðvitað óhjákvæmilegt, þar sem norska kirkjan fékk
sinn eigin erkibiskup og heyrði uppfrá þeirri stundu páfastóln-
um til.
Hin forna kirkjuskipun Noregs var þannig, að konungur lands-
ins var í raun réttri yfirmaður kirkjunnar, biskupamir voru
konungkjörnir, en prestarnir þjóðkjörnir. Allur þingheimur var
löggjafi, og búandmenn voru dómarar í málum kirkju og kristni.
Slíkt fyrirkomulag var þá löngu úrelt og úr sögunni annars
staðar í Evrópu, og páfastóllinn kærði sig ekki um að viðhalda
slíku ástandi, sem þverbraut allar venjur og reglur heilagrar
kirkju.
Ösennilegt er, að Noregskonungum hafi verið það ljóst, hve
víðtækar brejúingar undanlátssemi þeirra í kirkjumálunum hlaut
að hafa í för með sér, er fram liðu stundir.
Þegar Nikulás kardínáli hafði fengið þvi framgengt, sem hann
taldi mestu varða, vígði hann Jón Birgisson, biskup i Stafangri,
til erkibiskups í Niðarósi og afhenti honum það pallíum, sem
hann hafði haft með sér frá Rómaborg.
Pallíum er embættistákn erkibiskupa, er það þriggja þurnl-
unga breiður hvítur ullarkragi, skreyttur svörtum krossmörkum-
Er það ofið úr ull vigðra sauðkinda, og fást nunnur i klaustri
einu í nánd við Róm við þá tóvinnu. Fylgch pallíið eiganda
sínum í gröfina, og varð þvi hver nýr erkibiskup að sækja pallí'
um sitt í páfagarð og greiða það með ærnu fé. Voru þetta drjúg-
ar tekjur í fjárhirzlu páfa.
Er Jón erkibiskup Birgisson var vígður i Kristskirkju í Niðar-
ósi á því herrans ári 1152, var þar saman komið hið mesta stór-
menni. Þá flutti Einar prestur Skúlason þar kvæði sitt „Geisla*
mn Ólaf hinn helga fyrir konungunum þremur, kardínálanum,
erkibiskupi, biskupum, höfðingjum, klerkum og allri alþýðu.
Nikulás kardínáh dvaldi um hríð í Noregi og skipaði kirkj-
unnar málum. Harrn grundvallaði kirkjuvaldið í Noregi, og fór