Eimreiðin - 01.10.1953, Qupperneq 22
258
VALTÝR Á GRÆNNI TREYJU
eimbeiðin
staðaþingstað líka fram á þennan dag, og allir haft fulla vissu um>
hverju sætti.
En það er orðin mikil missögn í sögunni, er hún er skráð. Venju-
lega er það svo með slíkar sögur, að þær eru í stærstu atriðum
úlfaldar, sem einu sinni voru mýflugur. Það hefur að öllum líkum
enginn Valtýr búið á Eyjólfsstöðum á þessum eða neinum nálæg'
um tíma, minnsta kosti ekki eftir 1600. Það er augljóst mál, að
morð Símonar er ekki gert til fjár. Til þess vantar allan mála-
rekstur, sem ætíð verður um horfið fé, eins og ljóst er um alla
sögu, og hinn grunaði maður ekki gat hafa staðið skil á, eins
og á stóð. Að öllum líkum er hinn seinni Valtýr á grænni treyju
saklaus af lífi tekinn, enda verða fyrst fyrir í þeirri sögu hindur-
vitni, sem enginn tekur mark á, og má því gruna, að allur mála-
rekstur gagnvart honum hafi verið sama eðlis. Það eru ekki líkur
fyrir öðru en því, að morðið verði af þeim sökum, að smalar
eigist við og verði tveir einum að slysi, en óviljandi, og gat margt
borið til, og kunnugt, að slíkum mönnum verður oft misþykki-
samt. Er smali sýslumannsins á Ketilsstöðum eins konar rauður
kjóll, sem lætur nokkuð, en gáir ekki að sinni ,,bæn, þegar fram
fellur treyjan græn“, eins og skáldið segir. En smalarnir verða
ofsahræddir og finna það upp að segja þá sögu, sem í sínu atriði
sögunnar er sennilega hárrétt. Þeir vita, að þarna er maður a
einhvers konar ferð, sem enginn veit yfir hverju býr, enda öllum
ókunnur. Er slíkt gamalt ráð og nýtt, að koma sökum á aðra,
en saga þeirra mundi aldrei hafa verið tekin gild, ef hér hefði
þekktur heiðursmaður átt í hlut, sem allir hefðu getað metið
í öllu, hvort gæti verið valdur að slíku verki, jafnvel þótt það
sé ný og gömul saga, að smali með ágangsfé geti verið litinn
illu auga.
En hér virðist það fullljóst, að bóndinn á Eyjólfsstöðum er
ekki riðinn við málið, svo að morð smalans verður ekki af ágangS'
sökum búfénaðar, og verða þá ekki aðrar skýringar fundnar a
morði þessu en hér eru fram komnar, jafnvel þótt aldrei verði
sannað, hver hann er, þessi Valtýr, sem hér verður fyrir rangri
sök og geldur með lífi sínu.