Eimreiðin - 01.10.1953, Page 49
EIMREIÐIN
HÚN AMMA MlN
285
samverustundir í sverðinum, einkum þegar gott var veður
°g heiðríkt. Af Börðunum blasti við Salteyrardalurinn, en
Þar átti heima huldufólk, að sumra þeirra sögn, er þóttust
séð hafa og heyrt. Huldufólkstrúin var ekki útdauð með
öllu fyrir og um aldamótin síðustu. Að minnsta kosti eymdi
eftir af henni í Seyðisfjarðarheppi, og sumt eldra fólk trúði
fastlega, að til væri huldufólk. Heyjað var að heiman á
Salteyrardal, og legið þar við stundum. Kom þá fyrir, að
álfarnir sáust að sinni iðju, og þótti heillamerki að hafa orðið
beirra var. Amma mín var varkár í orðum um sanngildi
sagnanna af huldufólkinu í dalnum, en þó fór því fjarri, að
hún neitaði þeim. Og því var trúað, að verndarkraftur fylgdi
veru þess í landi jarðarinnar, bæði fyrir fólk hennar og fénað.
Seinna kynntist ég Salteyrardal betur, komst upp í Kúa-
botna, upp á Bi’öttubrekku og enn lengra upp eftir dalnum,
allt upp á efsta tindinn yfir honum, Bægslið svonefnda, en
Þaðan er hið fegursta útsýni yfir fjörðinn, fjöllin til Loð-
fftundarfjarðar, Borgarfjarðar, Héraðs, suðurfjarða og á
haf út.
Um sauðburðartímann á vorin var oft erfitt tíðarfar, snjór
ehki tekinn af jörðu, hríðarveður, snjóbleytur eða rigningar,
svo að ærnar áttu fullt í fangi með að halda lífinu í ný-
hornum afkvæmum sínum og urðu stundum að fá til þess
aðstoð mannanna, að ungviðið ekki króknaði út af í vor-
harðindunum. Þá reið á að vera sífellt á varðbergi og veita
ánum alla þá aðhlynningu og hjálp, sem unnt var. Stundum
varð að fara með nýfædd lömb heim frá mæðrunum, bera
t>au inn í baðstofu að eldstónni, gefa þeim volga nýmjólk
°g halda í þeim lífinu í nokkra daga, unz þau hresstust,
komust á legg og óhætt var talið að fela þau aftur forsjá
móðurinnar, væri hún á lífi. En hefði hún orðið illviðrinu
að bráð, dottið ofan um eitthvert snjóloftið í leysingunum
eða látið lífið á einhvern annan hátt, var oftast ekki um
annað að gera en ala lambið upp heima, ef ekki tókst þá
að venja það undir aðra á. Þannig urðu heimalningamir
stundum fleiri en einn og fleiri en tveir yfir sumarið, börn-
unum uppáhald og yndi, en konunum á bænum nýr erfiðis-
auki, því að í þeirra hlut kom að annast þetta ungviði, koma