Eimreiðin - 01.10.1953, Page 76
312
LEIKLISTIN
F.IMREIÐIN
leikstjórnina, og er honum til
lofs, hve leikurinn nýtur sín vel
á sviði. En hæpin eru hin tíðu
atriðaskipti, alls eru atriðin 21.
Þetta fyrirkomulag á leiksviði
getur átt við stundum, en getur
einnig verkað truflandi og dreg-
ið úr áhrifum. Leiktjöldin gerði
Lárus Ingólfsson, og hefðu þau
gjarnan mátt vera fyllri, eink-
um í útiatriðunum, svo sem út-
sýn yfir Lagarfljót og Fellin af
hlaðinu á Egilsstöðum, eða þá
upp til Fjarðarheiðar, þar sem
ekkert sást á sviðinu utan grá-
leitur móðuhryggur. — Þrátt
fyrir ýmsa annmarka, sem finna
má á leik þessum, er margt í
honum vel gert, og vissulega
skortir þar hvorki váleg tíðindi
né atburðaspenning. Mynd sú,
sem hann bregður upp af lífinu
í landi voru fyrir svo sem tveim
öldum, mun um margt vera bæði
rétt og sönn.
Hitt aðalhlutverk sitt, að sýna
leikhúsgestum það bezta úr er-
lendri leikritagerð, hefur Þjóð-
leikhúsið einnig leitazt við að
rækja og tekizt misjafnlega. I
vetur hefur það meðal annars
sýnt leikritið Sumri hallar eftir
Bandaríkjamanninn Tennessee
Williams, með Katrínu Thórs og
Baldvin Halldórsson í aðalhlut-
verkunum. Leikurinn er krufn-
ing, í anda Freuds, á hvatalífi
ungrar stúlku, sem öfugt upp-
eldi og erfitt heimilislíf hefur
gert að annarlegri persónu.
Alma, unga stúlkan, er leikin
af Katrínu Thórs, sem skilaði
hlutverkinu með góðum skiln-
ingi og tókst að sýna sálarlíf
Ölmu svo átakanlega, að samúð
vakti. En leikkonuna skortir enn
nokkuð á í þjálfun raddarinnar
og hún talaði fulllágt. Baldvin
Halldórsson fór einnig vel með
Katrín Thúrs í hlutverki ölmu.
hlutverk læknissonarins, slark-
arans og læknisins. Þýðingin á
leiknum var sums staðar göll-
uð, en sjálfur er hann snjall og
gefur áhorfendum umhugsunar-
efni. Sv. S.