Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1957, Qupperneq 70

Eimreiðin - 01.04.1957, Qupperneq 70
142 EIMREIÐIN astar, því að hjá engum varð ég nokkurn tíma neins var nemr. alls hins bezta, sem til er í fari minnar eigin þjóðar. Fyrsta deginum, sem var sunnudagur, sem fyrr var getið, varði ég til þess að skoða mig um í Belfast, hinni miklu hafnar- og iðnaðarborg Norður-írlands, sem hefur nærri hálfa milljón íbúa. Ég hafði einhvern tíma heyrt tekið þannig til orða, að Belfast væri „önnur Glasgow". Má það til sanns vegar færa, ef átt er við, að báðar eru miklar iðnaðar- og verzlunar- borgir. En í Belfast er bragurinn allur annar. í fyrsta lagi er Belfast miklu hreinlegri borg og — að mér finnst — skipu- legar byggð og fegurri. Þaðan, sem ég bjó, í háskólahverfinu, var ekki nerna stund- arfjórðungs gangur niður í miðbæinn, þar sem sérstaka athygli mína vakti ráðhús borgarinnar, mikil og fögur bygging, reist af stórhug og framsýni, en byggingar eru annars fjölmargar hinar myndarlegustu og götur breiðar. Fátt manna var á ferli, er ég lagði í gönguna, klukkustundu fyrir hádegi, en um tólfleytið fór að fjölga á götunum, er fólkið tók að streyma úr kirkjunum, en kirkjusókn er hvar- vetna mikil á írlandi, jafnt meðal mótmælenda sem kaþólskra, og gafst því gott tækifæri til að virða fólkið fyrir sér. Vakti það þegar athygli mína, hve það var frjálsmannlegt og hraust- legt og laust við öll merki úrkynjunar. Benti þetta til vel- megunar, eða að minnsta kosti, að yfirleitt kæmust menn vel af, og varð mér fljótt Ijóst, að þetta átti rót sína að rekja meðal annars til þess, að hér hefur ekki átt sér hið sama stað og í iðnaðarborgum Englands og Skotlands, en þangað hefur verið aðstreymi úr öllum áttum, svo sem. frá ýmsum löndum á meginlandinu og fjarlægum löndum í öðrum heimsálfum, heldur hefur Belfast fengið sína aukningu frá sjálfri sér og sveitahéruðunum í Ulster. í öðru lagi varð mér það um- hugsunarefni á heimleið, eftir um fjögurra klukkustunda rölt, hafði meðal annars horft á mjög fjölmenna skrúðgöngu, að ég hafði ekki séð eitt einasta andlit, sem ekki hefði getað verið íslenzkt. Hið sama gat ég sagt eftir viku dvöl, en það gæti ég vissulega ekki sagt um neina stórborg aðra, sem ég hafði áður dvalið í. Annan daginn, sem ég dvaldi í Belfast, lagði ég leið mína
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.