Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1964, Síða 71

Eimreiðin - 01.01.1964, Síða 71
EIMREIÐIN 59 trénu, þangað til rökkrið færi að síga yfir lantlið, og reyna að komast að einhverri niðurstöðu um fram- tíðarfyrirætlanir sínar. Vitneskjan um það, að faðir hennar myndi deyja innan skamrns, virtist hvort tveggja í senn trúleg og ótrúleg, en hún gat ekki hugsað sér hann sem liðið lík. Þegar hún hugsaði um dauðann í sambandi við föður stnn, sá hún ekki fyrir sér kaldan líflausan líkama, sem grafinn yrði t jörð. í þess stað fannst henni að íaðir sinn myndi ekki deyja, held- ur fara eitthvað burt, í ferðalag. f3að hafði móðir hennar gert fyrir löngu síðan. Henni var einhver undarleg, óræð fróun að þessari hugsun. „Jæja,“ sagði hún við sjálfa S1g, „einhverntíma kemur að því, að einnig ég legg af stað, burt héð- ;,n, eitthvað út í heiminn". Nokkr- um sinnum hafði Mary farið með föður sínum til Chicago og dvalið þar daglangt, og hugsunin um, að ef til vill færi hún þangað áður en fangt liði og settist þar að, vakti hjá henni tilhlökkun. Fyrir hugar- sjónum hennar svifu löng stræti, full af ókunnugu fólki, svo þús- undum skipti. Að ganga eftir slík- l|m götum og lifa lífi sínu meðal framandi fólks myndi vera eins °g að koma utan af skrælþurri eyðimörk inn í svalt skóglendi, þar sem skógarbotninn var þakinn mjúku, fersku grasi. Yfir líii hennar í Huntersburg hafði alltaf verið þungbúið ský og nú þegar hún var að verða full- þroska kona, var þetta innilokaða, þunga andrúmsloft, sem hún liafði alltaf andað að sér, sífellt að verða meira og meira kæfandi. Það var að vísu satt, að aldrei hafði bein- línis komið til neinna reiknings- skila varðandi stöðu hennar í sam- félaginu, en hún fann að einhvers konar andúð gegn henni lá í loft- inu. Þegar hún var aðeins ung- barn liafði eitthvert hneyksli kom- ið fyrir varðandi foreldra hennar. Það hafði valdið miklu uppnámi i Huntersburg og þegar hún var barn hafði fólk stundum horft á hana hæðnislegum meðaumkvun- araugum: „Veslings barnið! Þetta er meira ólánið,“ sagði það. Einu sinni, eitt þokudimmt sumarkvöld, þegar faðir hennar liafði ekið út í sveit og hún sat alein í rökkrinu við gluggann í skrifstofu hans, heyrði hún karlmann og kven- mann, sem gengu eftir götunni, nefna nafn sitt. Þau fálmuðu sig áfram í myrkrinu eftir gangstétt- inni undir glugganum: „Það er mjög lagleg stúlka, þessi dóttir læknisins,“ sagði maðurinn. „Hún er nú að verða fullorðin og er far- in að draga að sér athygli karl- manna. Þér er bezt að gæta augna jnnna. Hún reynist áreiðanlega illa. Dóttir líkist oftast móður sinni.“ I tíu eða fimmtán mínútur sat Mary á steininum við tréð í aldin- garðinum og hugsaði um fram- komu bæjarbúa við hana sjálfa og föður hennar. „Það hefði átt að tengja okkur saman,“ sagði hún við sjálfa sig, og fór að hugsa um hvort nálægð dauðans myndi fá því áorkað, sem jætta dökka ský, er ár- um saman hafði varpað skugga yfir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.