Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1964, Page 73

Eimreiðin - 01.01.1964, Page 73
EIMREIÐIN 61 einhvern lil að drepa ]>ig,“ æpti hún. Mary gekk eftir veginum og nið- ur hæðina í áttina til Wilmott ■^treet. Samhengislaus slitur af sög- unni um móður hennar, sem árum saman hafði verið á vörum íbúana 1 Huntersburg, höfðu komizt henni til eyrna. Það var sagt, að sumar- kvöld eitt fyrir löngu síðan hefði móðir hennar horfið á brott, og að ungur bæjar-róni, sem hafði lagt það í vana sinn að slæpast fyrir utan hesthús Barneys Smithfields, hefði farið með henni. Nú ætlaði annar ungur róni að gera sér dælt við hana. Hugsunin um það gerði hana hamslausa af bræði. Hún braut heilann ákaft og feyndi að láta sér detta í hug eitt- hvert vopn, sem hún gæti notað til þess að gefa Duke Yetter enn otvíræðari ráðningu. í örvæntingu sinni varð henni hugsað til föður síns, sem nú var farinn að heilsu °g dauðvona. „Faðir minn bíður aðeins færis til að drepa einhvern svona skíthæl eins og þig,“ hrópaði hún og sneri sér að unga mann- •num, sem hafði tekizt að losa sig hr vínviðarflækjunni í aldingarð- tnum og kom nú á eftir henni á veginum. „Föður minn langar ein- ntitt til að drepa einhvern, vegna allra lyganna um móður mína, sem gengið hafa mann frá manni í þess- um bæ.“ Um leið og hún hafði þannig látið undan tilhneigingu sinni til að hafa í hótunum við Duke Yetter, sárskammaðist hún sín fyrir að hlaupa þannig á sig, tárin streymdu úr augum hennar og hún hraðaði för sinni sem mest hún mátti. Duke Yetter fylgdi henni fast eftir, nið- urlútur og skömmustulegur. „Ég ætlaði ekki að gera neitt illt af mér, ungfrú Cochran,“ svaraði hann í bænarrómi. „Ég ætlaði ekki að gera neitt illt. Segið ekki föður yð- ar frá þessu. Ég var bara að gera að gamni mínu við yður. Ég segi yður satt. Ég meinti ekkert illt með þessu.“ Birta sumarkvöldsins var tekin að dvína og andlit fólksins líktust litlum, ávölum tunglum, þar sem það stóð í hópum í kvöldhúminu við fordyri húsanna eða girðing- arnar í Wilmott Street. Raddir barnanna voru orðnar lágt'ærar og þau stóðu nú líka í smáhópum hér og þar. Þau þögnuðu á meðan Mary gekk framhjá, stóðu kyrr og horfðu upp á hana, starandi aug- um. „Ungfrúin á víst heima ein- hvers staðar ekki langt í burtu. Hún hlýtur að vera allt að því ná- granni okkar,“ heyrði hún kven- rödd segja á ensku. Þegar hún leit við, sá hún aðeins hóp hörunds- dökkra manna standa þar fyrir ut- an eitt húsið. Innan frá húsinu barst kvenrödd, sem var að raula barn í svefn. Ungi ítalinn, sem kallað hafði til hennar fyrr um kvöldið, kom gangandi eftir gangstéttinni og beygði skyndilega til hliðar inn í myrkrið, auðsjáanlega á leið til sinna sunnudagskvölds-ævintýra. Hann hafði klæðst sunnudagsföt- unum sínum, sett upp „derby“-hatt, hvítan, stífan flibba og rautt háls-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.