Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1964, Side 76

Eimreiðin - 01.01.1964, Side 76
64 ÉIMREIÐIN þannig, hvíldu hendurnar á hnjám hans og hann einblíndi á þær, nið- ursokkinn eins og barn. Honum fannst þær hlytu að tilheyra ein- hverjum öðrum. Hann varð heim- spekilega sinnaður. „Það er dálítið skrýtið þetta með líkama minn. Nú hef ég lifað í honum öll þessi ár og þó hefur hann verið mér til svo lítils gagns. Nú á hann að fara að deyja og visna, svo að segja ónotaður. Hvers vegna skyldi liann ekki hafa hlotið einlivem annan íbúanda." Hann brosti dapurlega að ímyndunum sínum, en hélt þó áfram sem áður. „Jæja, ég hef svo sem hugsað nógu mikið um fólk og ég hef haft þessar varir og þessa tungu til afnota, en ég hef ekki talað. Þegar Ellen mín var hjá mér, lét ég hana álíta mig kaldlyndan og tillinningalausan, þrátt fyrir það þó eitthvað innra með mér stritaði og streyttist við að fá útrás.“ Hann minntist þess, hversu oft hann, sem ungur maður, hafði set- ið þegjandi við hlið konu sinnar í þessari sömu skrifstofu og hversu hann hafði verkjað í hendurnar af löngun til að rétta þær yfir bilið, sem aðskildi þau, og snerta hendur hennar, andlit hennar, hár hennar. O jæja, allir íbúar bæjarins höfðu spáð því, að hjónaband hans myndi fara illa. Konan hans hafði verið leikkona og ferðast með litl- um leikflokki, sem dagaði uppi hér í Huntersburg. Unga stúlkan hafði veikzt og átti enga peninga til að greiða fyrir herbergið sitt á hótel- inu. Ungi læknirinn hafði þá kom- ið henni til hjálpar og á meðan hún var að ná sér eftir veikindin, hafði hann boðið henni með sér í ökuferðir út í sveitirnar umhverf- is; í litla eineykisvagninum sínum- Hún hafði átt við erfið kjör að búa fram til þessa, og tilhugsunin um rólegt og þægilegt líf í þessum litla bæ, hafði fallið henni vel í geð- En eftir að þau voru gift og barnið fætt, kom að því, fyrr en varði, að hún treysti sér ekki til að halda áfram að búa með þessum þögula, kaldlynda manni. Það hafði komizt á kreik saga um það, að hún hefði hlaupizt á brott með ungum spjátrungi, syni veitinga- hússeiganda, sem hafði horfið burt úr bænum um sama leyti. En sag- an var tilhæfulaus. Lester Cochran hafði sjálfur farið með henni til Chicago, og þar réði hún sig til starfa hjá leikflokki, sem var í þann veginn að leggja af stað til fjar' lægra vestur-héraða. Síðan liafði hann fylgt henni að dyrum hótels, sem hún ætlaði að búa á, þar til lagt yrði af stað. Þegjandi hafði hann lagt peninga í lófa liennai og án þess að kyssa hana svo mikið sem einn kveðjukoss, hafði hann snúið sér frá henni og gengið burtu. Læknirinn sat í skrifstofu sinni og lifði upp aftur í huganum þenn- an atburð og ýmis önnur atvik ®vi sinnar, sem höfðu snortið hann djúpt, þótt hann á yfirborðinu hefði virzt ósnortinn og rólegui- Hann velti því fyrir sér, hvoit konan hans hefði skilið það- Hversu oft liafði hann ekki spm1 sjálfan sig þessarar spurningar. Eft'
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.