Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1966, Side 74

Eimreiðin - 01.01.1966, Side 74
62 ElMRElÐlti huga, að ég hafði mér fyrir augum Suður-Jótland, sem Danir höfðu verið sviptir, þetta land, er var unnað svo heitt, saknað svo sárt, deilt um svo hatramlega, kveðin um svo fögur ljóð, en var óaftur- kræft í bráð og lengd. Ég hafði gert mér í hugarlund, að sérstakur blær væri yfir lands- lagi þar, en svo langt sem ég eygði var það marflatt og frjósamt með húsaþyrpingum hér og þar, ökr- um, vegum og smálundum, — líkt og skánska flatneskjan, sem ég var orðin kunnug á undanfarin ár. í öðru hléi var mér boðið að heimsækja gamla, fræga þjóðsagna- fræðinginn séra H. F. Feilberg. Poul La Cour var sem sé ekki eini vísindamaðurinn, sem átti heima í Askov. Jafnvel þessi ljúfmannlegi gamli maður, sem gjörþekkti nor- ræna þjóðtrú öllum betur, allar okkar sagnir, ævintýri og þjóðsiði, hann hafði setzt þar að og fékkst þar við rannsóknir sínar og marg- vísleg ritstörf, svo sem hina merku Orðabók í józkum mállýzkum. Ég gat ekki varizt að furða mig á því, að hann skyldi hafa bæki- stöð sína hér. Hann kenndi ekkert við lýðskólann. Og hann gat valið um samastaði. „Hann var eitt sinn prestur á Suður-Jótlandi,“ var mér sagt. Ég skildi, að það þótd næg skýring. Einn mótsdaginn var ég beðin að lesa upp smásögu eftir mig sjálfa. Ég lét til leiðast. En ég verð að játa, að framlag mitt á sal var hið eina, sem hálfmisheppnaðist. Áheyrendur, sem ella voru þolin- móðir, veittu sumir hverjir enga athygli því, sem ég las upp, nokkr- ir þeirra hurfu meira að segja a brott úr sal, meðan ég var í ræðu- stól. Síðar kom í ljós, að þeir skildu lítt eða ekki það, er ég flutti. Sum- ir þeirra gátu að vísu lesið sænsku, en talmálið skildu þeir alls ekki- „Nú-já,“ sagði Ludvig Schröder, „en það er líka býsna langt fra Vermalandi til Suður-Jótlands. Þér getið verið vissar um það, ung- frú Selma Lagerlöf, að þér mynd- uð ekki heldur skilja mállýzku Suður-Jóta.“ Ég spurði undrandi, hvort jafn- vel Suður-Jótar kæmu þangað til þess að hlusta á fyrirlestra. „Ójá, flestir áheyrendur á haust- mótinu nú eru Suður-Jótar.“ „Og hafa þeir gengið í lýðskól- ann í Askov?“ „Flestir þeirra hafa numið í lýð' skólanum hérna,“ anzaði hann enn. „Eru þá allir þessir hávöxnu menn, sem koma hingað akandi á morgnana, Suður-Jótar?“ „Þorri þeirra á heima handan landamæranna,“ svaraði hann og staðfesti tilgátu mína. — — Síðasta mótsdaginn steig ritstjón frá Flensborg í ræðustól og talaði um Suður-Jótland. Hann hóf mál sitt með því að segja, að þegar menn hugsuðu til valds og stærðar þýzka keisara- dæmisins, til auðlegðar þess og fólksfjölda og frábærrar skipulagn- ingar og allra skylduræknu emb- ættismannanna, — að ónefndum hinum þýzka hermætti, — þá virt- ist blátt áfram fjarstæða, að lídd
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.