Eimreiðin - 01.01.1966, Blaðsíða 42
30
eimreiðiV
daga á bæ og vildi hún fúslega vinna eitthvað til gagns, enda vai
liún aldrei talin á vergangi alin. Vildi hún gjarna gæta barna og varð
hún fljótt mikil vinkona þeirra. Og við fé gat hún gengið. Var
mesta furða hve margt hún gat unnið. Það var eirðarleysi, sem olh
flakki hennar en eigi leti. Hafði það þjáð hana alla tíð síðan Þórarinn
Máhlíðingur maður hennar var flæmdur af landi brott.
Og nú gekk hún heim að Kjalvararstöðum í Reykjardal nyrðn-
Þar bjó Kjalvör vinkona hennar, er hún hafði kynnst í Vatnsfirði-
Jafnkomið var á með þeim, Auði og Kjalvöru, er báðar höfðu niisst
bændur sína á þann veg að þeir hurfu til útlanda, og var borin von
að þeir kæmu til íslands aftur. Af Þórarni manni Auðar hafði það eitt
frétzt að hann hafði gengið í flokk víkinga, sem ætluðu út til Mikla-
garðs og vildu gerast Væringjar. Hólmsteinn maður Kjalvarar hafði
farið í víking í vesturveg og var það hald manna að hann hefði fallið
í miklum bardaga á írlandi. En sonur Kjalvarar, Snæbjörn Hólm-
steinsson, fór í landaleitan, fann þá Grænland, en var svikinn þat'
af skipverjum sínum og drepinn, eins og segir í sögunni af Snæbirni
galta.
Auður gekk tröðina heim að bænum og kvaddi dyra. Hún sá að
fólk starfaði á engjum. Kjalvör kom sjálf fram og tók forkunnar vel
á móti gestinum, er hún kenndi Auði. Þær gengu í skála og að skuth
nær því borði, er mikið skapker stóð á, af miði fullt. Þar var pallui
að sitja á og hægindi góð. Kjalvör hellti justukönnu eina fulla af
miði og setti silfurbikar fyrir Auði, hafði annan sjálf, renndi í bik-
arana og signdi yfir. Síðan leit hún upp og brosti við vinkonu sinm-
Auðséð var að allmjög var nú Kjalvör orðin aldri orpin, hárið mjall-
hvítt og bogið bak. En skapið og kjarkurinn héldu enn sinni fornu
reisn.
„Hefur þú nú látið skírast, Auður?“
„Eigi enn,“ svaraði Auður og brosti glettin.
„Hví eigi?“ spurði Kjalvör alvarleg.
„Mér þótti vatnið kalt. Síðan var ég brynsignd.“
„Prímsignd munt þú verið hafa,“ leiðrétti Kjalvör. „Það er
skemmri skírn, sem veitir þér rétt til að samneyta kristnum jafnt og
heiðnum. En þetta gefur þér þó engan rétt til þess að ganga í kirkju
og leysir þig eigi undan erfðasyndinni. Kona, þú verður að láta
skírast.“
Auður brosti og dreypti á miðinum.