Eimreiðin - 01.01.1966, Qupperneq 88
76
EIMRElÐlN
veiðiferðum á sumrum. Hann var
á skipi sínu við 9 mann í Vínlands-
för í flota Þorfinns karlsefnis, en
hrakti þaðan til írlands og var þar
hertekinn, þrælkaður og drepinn,
samkvæmt frásögn Þorfinns sögu,
Eyrbyggju og Landnámu o. fl.).
12. ÞORSTEINN EIRÍKSSON
FÆR GUÐRÍÐAR.
„Það hafði gerzt til tíðinda með-
an á Grænlandi, að Þorsteinn í
Eiríksfirði, son Eiríks rauða, hafði
kvongazt og fengið Guðríðar Þor-
bjarnardóttur, er átt hafði Þórir
Austmaður, er fyrr var frá sagt.“
13. ÞORSTEINN EIRÍKSSON
LEITAR VÍNLANDS.
Nú fýstist Þorsteinn Eiríksson
að fara til Vínlands eftir líki Þor-
valds, bróður síns, er fallið hafði
fyrir skrælingjum og var þar graf-
inn. Hann bjó skip hið sama og
haft hafði Þorvaldur bróðir hans,
en það var skip hið sama og átt
hafði Þorbjörn Vífilsson og Þórir
Austmaður stýrði með Guðríði
Þorbjarnardóttur og Leifur hinn
heppni bjargaði af skerinu. Leif-
ur hinn heppni fór aðra ferð í
ið sama far og náði þá varningi
öllum, er eftir var í skerinu, og
svo skipinu sjálfu tir festu og fékk
bætt það. Þorsteinn Eiríksson bjó
skip sitt vel og fékk sér valið lið
að afli og vexti og hafði með sér
Guðríði konu sína og sigldi í haf
þegar þau voru búin og úr land-
sýn. Þau velkti úti allt sumarið og
vissu eigi hvert þau fóru. Og er
vika var af vetri, þá tóku þau land
í Lýsufirði á Grænlandi í hinni
vestri byggð. Sótt kom í lið Þor-
steins Eiríkssonar, og andaðist
hann þar og margt förunauta hans
um veturinn. En er ísa leysti, og
leiðir opnuðust, hélt Guðríður
skipi sínu austur og til Eiríksfjarð-
ar og flutti með sér lík Þorsteins
bónda síns, er jarðað var að Þjóð-
hildarkirkju.
14. ÞORFINNUR KARLS-
EFNI FÆR GUÐRÍÐAR.
Þaða sama sumar kom skip af
Noregi til Grænlands. Sá maður
hét Þorfinnur karlsefni, er því
skipi stýrði. Hann var sonur Þórð-
ar hesthöfða Snorrasonar, Þórðar-
sonar frá Höfða.
Þorfinnur karlsefni var stórauð-
ugur að fé, og var um veturinn i
Brattahlíð með Leifi Eiríkssyni-
Brátt felldi hann hug til Guðríðar
og bað hennar, en hún veik því til
Leifs svörum fyrir sig. Síðan var
hún lionum föstnuð og gert brúð-
kaup þeirra á þeim vetri.
15. VÍNLANDSFÖR KARLS-
EFNIS OG GUÐRÍÐAR.
Hin sarna var umræða á Vín-
landsför sem fyrr, og fýstu menn
Kerlsefni mjög þeirrar ferðar,
bæði Guðríður og aðrir menn. Nn
var ráðin ferð hans, og réð hann
sér skipverja, sex tigu karla og kon-
ur fimm.
Þann máldaga gerðu þeir Karls-
efni og hásetar hans, að jöfnuffl
höndum skyldi þeir hafa allt það,
er þeir fengi til gæða. Þeir fóru a
þrern skipum og höfðu með sér alls
konar fénað, því þeir ætluðu að