Iðunn - 01.02.1885, Side 6

Iðunn - 01.02.1885, Side 6
68 Hagnýting náttúrukraftanna. kaupi 10,000 pund. jpví að ætíð er ódýrara að kaupa stórkaupum enn smákaupum, og á sama hátt eru samau dregin forráð kostnaðarminni enn ef þau eru í mörgu lagi. það er auðsætt, að stór eldstó, sem hitar í nokkurum hlutaborgar, þarf minna elds- neyti enn margar litlar eldstór. Iiitaleiðsla hefir enn eigi komizt á í borgum í Evrópu, nema einung- is í stöku hirsum, og Ameríku-menn eru skamt komnir áleiðis í þeirri grein, þótt þeir sé ötulastir hugvitsmenn og kosti mjög kapps um, að spara mannsafiið. Ef auðið yrði, að hafa eina eldstó í staðinn fyrir margar, þá mundi miklu minna eytt af kolum. Mestu eldsneyti eyða gufuvélarnar. Vér getum vísað þeim til hagfrœðirita, er fýsir að vita, hvé margar gufuvélar eru til í hciminum eða livé margra hesta afl þær hafa að samtöldu, svo og hvó mörgum tunnum af kolum þær eyða um árið. Hér er um feikna háar tölur að rœða, og alt þetta fer ótrúlega í vöxt með ári hverju. Gufuvólin er snildarverk, enn mjög er henni áfátt í sparnaði. 1 meir enn hálfa öld hafa ýmsir völundar fengizt við að gera gufuvól- arnar eldiviðardrýgri. Með þrýstingarvélum má nota einn tíunda hlut af megni eldiviðarins, þeim sem svo eru gerðar, að gufan fer með þungri þrýst- ingu úr minna veli (cyliuder) í annan meira og slær sér þar út með minni þrýstingu. 1 öðrum gufuvélum, t. d. vagnvélunum, fara 95 hundruðustu hlutir af kolamegninu til ónýtis. Verðr því að brenua hundr- að pundum af kolum til að nota að fullu það hita- mogin, sem fólgið er í fimm pundum. Nítján tutt- ugustu hlutir verða að engum notum.

x

Iðunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.